1.7.2009 12:24Lesið í landið 2009 Mikill áhugi á íslenskum lækningajurtum Síðasti fræðslufundur sumarsins í Sesseljuhúsi umhverfissetri var haldinn á laugardaginn var og mættu um eða yfir 90 manns til fundarins.Jón E. Gunnlaugsson var með fræðslu um nýtingu jurta til heilsueflingar og fór mæting fram úr björtustu vonum þar sem tæplega hundrað manns mættu til fundarins og greinilegt að áhuginn er mikill á þessum málum.
Alls hafa tæplega tvöhundruð manns sótt fræðslufundi sumarsins sem að þessu sinni voru þrír talsins og fjölluðu um jarðfræði Íslands og var fjallahringurinn í kring um Sólheima skoðaður og greint hvernig fjöllin mynduðust. Rúmlega 60 manns mættu á fuglaskoðun og gekk stór hópur um Sólheimasvæðið í leit að þeim fjölmörgu fuglategundum sem eru á Sólheimum.
Fræðslufundaröðin er komin til að vera og verður leitast við að fjölga fundum á næsta sumri og bjóða upp á enn fjölbreyttari fræðslu fyrir almenning.