26.7.2010 16:06 Áhugaverðir gestir í Sesseljuhúsi
Þriggja manna fjölskylda á tvímenningsreiðhjóli um óbyggðir Íslands
Þessa stundina eru áhugaverðir gestir staddir hjá okkur í Sesseljuhúsi. Þetta er franska parið Damien Artero og  Delphine Million sem ferðast um landið þvert og endilangt á tvímenningsreiðhjóli með 10 mánaða dóttur sína, Lirio, í aftanívagni. Þau komu til Íslands með Norrænu um miðjan júní og hafa síðan þá hjólað á Borgarfjörð eystri og þaðan um þjóðveg nr. 1 alla leið til Reykjavíkur. Frá Reykjavík komu þau síðan hingað á Sólheima. Þau munu dvelja hér í nokkra daga við tökur á heimildarmynd sem þau eru að gera um ferð sína um landið. Næst er ferðinni heitið um Kjöl og þaðan aftur á Seyðisfjörð. Í heildina mun ferðin taka 2 og hálfan mánuð. Ferðin hefur gengið mjög vel að sögn ferðalanganna. Þeim finnst Ísland afar áhugavert land og segja að hjólreiðar séu vel mögulegar í óbyggðum Íslands. Það erfiðasta segja þau vera rigningarnar – en þá getur verið erfitt að þurrka taubleiurnar!


Til baka

 
 

 
Sesseljuhús umhverfissetur, Sólheimum, 801 Selfoss Sími: 480 4470 Netfang: sesseljuhus@solheimar.is