Alþjóðleg hreyfing sjálfbærra samfélaga, sem styrkir og stendur fyrir lifandi fyrirmyndum um allan heim (Eco-village). Fyrirmyndir sem geta verið lifandi staðfesting og áþreifanlegar, fyrirmyndir á kjarna allra nýliðinna ráðstefna Sameinuðu þjóðanna.Í Ríó, Kaupmannahöfn, Beijing, Istanbúl og Jóhannesarborg. Hér spila saman umhverfismál, félagsmál og andleg markmið. Hugmyndir sem byggja á að blanda saman hefðum og nýrri tækni. Eco-village eru byggðahverfi í þéttbýli og dreifbýli, þar sem mannlegar athafnir taka mið af skaðlausri nýtingu náttúrunnar, samfélagið stuðlar að heilbrigðum þroska íbúanna og hægt er að viðhalda því um ókomna tíð. Þau byggja á jafnvægi milli allra þátta heilbrigðs samfélags: Skipulag sem byggir á hringrás og heildum. Félagskerfi sem lýtur að jafnrétti og lýðræði. Menningu er veitir andlegan þroska. Mannvirki sem samræmast náttúrunni.
Efnahagskerfið byggir á sjálfbærum lausnum. Fjármunum er varið til starfsemi sem stuðlar að skynsamlegri nýtingu náttúrauðlinda, bættri heilsu, menntun og fegurra mannlífi. Rekstur fyrirtækja tekur mið af efnahagslegum og félagslegum áhrifum á samfélagið. Eco-village leggja m.a. áherslu á mannvirki sem byggð eru í sátt í náttúruna, eigin orkuöflun og orkusparnað, matvæla framleiðslu til eigin nota, lífræna ræktun og atvinnustarfsemi, handverk úr náttúrulegum efnum, græna ferðaþjónustu og endurnýtingu og endurvinnslu.