|
 |
 |
|




|
 |
|
7.9.2010 14:16 Nytjasveppir í náttúru Íslands Laugardaginn 11.september kl. 13 verður boðið upp á klukkutíma langa fræðslu og gönguferð á vegum Sesseljuhúss þar sem Michele Rebora mun leiðbeina og fræða fólk um íslenska nytjasveppi.
Lesa meira... |
18.8.2010 14:30 Fræðslufundur - Umhverfisvæn ferðaþjónustaLaugardaginn 21.ágúst klukkan 13.00 mun Guðrún Bergmann halda fræðslufund um umhverfisvæna ferðaþjónustu, ferðaþjónustu framtíðarinnar. Áhugaverður fundur fyrir alla sem eru í ferðaþjónustugeiranum. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Lesa meira... |
13.8.2010 18:01 Lífrænn dagur á SólheimumÁ laugardaginn kemur verður nokkurs konar uppskeruhátíð á Sólheimum á
hinum lífræna degi þegar afrakstur sumarsins verður til sölu. Slegið
verður upp markaðstjöldum fyrir utan verslunina Völu þar sem lífrænt
grænmeti, tré og blóm verða til sölu auk listmuna úr listasmiðjum
Sólheima. Auk þess verður ýmislegt fleira um að vera, má þar nefna
tónleika með Ragnari Bjarnasyni og Þorgeiri Ástvaldssyni, leiðsögn um
trjásafn Sólheima að ógleymdum þeim Begga og Pacas sem munu elda
lífræna rétti úr uppskeru sumarsins. Skátar frá Sólheimum munu selja
happdrættismiða, Sólheimakórinn syngur o.fl. o.fl.
Lesa meira... |
27.7.2010 11:52  Sparnaðarráð vikunar eru hugmyndir sem gestir Sesseljuhús komu með seinasta sumar í tengslum við sýninguna Ókeypis. Lesa meira... |
14.7.2010 13:40 David Burt hefur hafið störf í Sesseljuhúsi sem starfsnemi. David kemur frá Bandaríkjunum og er nemi í The Ohio State University, Columbus, Ohio þar sem hann er að læra Arkítektúr. Nú eru fjórir starfsnemar hjá okkur í Sesseljuhúsi og einn sjálfboðaliði sem eru að vinna frábært starf. Við bjóðum þau öll velkomin. Lesa meira... |
28.6.2010 11:06 Heimsókn HáskólanemaCaitlin Wilson Brötzmann kom í heimsókn í Sesseljuhús miðvikudaginn 9.júní. Með henni voru um 20 bandarískir háskólanemendur í umhverfisfræði. Lesa meira... |
16.6.2010 16:31 Fræðslufundur í Sesseljuhúsi: Landslagið með gleraugum jarðfræðingsins Jón Eiríksson, jarðfræðingur við Raunvísindandeild Háskóla íslands mun fjalla um jarðfræðina í landi Sólheima og taka fólk í fræðslugöngu.
Fræðslufundurinn hefst kl. 13:00 laugardaginn 19. júní og stendur í um einn og hálfan tíma.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis! |
2.6.2010 14:47 Sýningin Sjálfbær byggð – Skipulag – hönnun opnar 5.júní kl 14:00 Sesseljuhús umhverfissetur , Landbúnaðarháskóli Íslands og Skipulagsfræðingarfélag Íslands bjóða til sýningar í Sesseljuhúsi Sólheimum laugardaginn 5.júní kl 14:00. Sýningin er lokahnykkurinn á valnámskeiði M.s. námi í skipulagsfræði.
Í námskeiðinu rannsökuðu nemendur sjálfbært skipulag sem tæki til að stuðla að umhverfisvænna og sjálfbærar manngerðu umhverfi. Niðurstöður rannsóknanna eru settar fram á myndrænan hátt á veggspjöldum.
Lesa meira... |
7.5.2010 14:30 Sjálfbær byggðSesseljuhús hefur nýhafið samstarf við skipulagsdeild Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og standa nemendur í námskeiðinu sjálfbær byggð – skipulag – hönnunı að gerð sýningar í samvinnu við starfsmenn Sesseljuhúss um sjálfbæra byggð. Á sýningunni verða atriði í hönnun og skipulagi sjálfbærra byggða kynnt og dregin fram atriði sem sýna fram á kosti sjálfbærra byggða fyrir einstaklinga og umhverfi.
Lesa meira... |
4.3.2010 17:23 Bros gefur birtu og yl! Það er ýmislegt sem fæst ókeypis í heimi hér, og margir segja að það besta í lífinu sé einmitt ókeypis. Það er því um að gera að minna sig á hvað er hægt að gera til að létta manni sjálfum lífið og þeim sem eru í kring um mann. Rannsóknir sýna að við það eitt að brosa, jafnvel þó það sé uppgerðarbros, sendist gleðihormón til heilans, og þannig er í raun hægt að plata okkur sjálf til að vera örlítið hamingjusamari. Lesa meira... |
1.3.2010 15:32 Vistvæn byggð - Vettvangur um sjálfbæra þróun í mannvirkjagerð Kynningar- og stofnfundir Vistvænnar byggðar - Vettvangs um sjálfbæra þróun í mannvirkjagerð var haldinn á fimmtudaginn í síðustu viku í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur. Áhugi á málefninu var mikill og komu alls 80 manns á fundinn úr mörgum mismunandi áttum. Fulltrúar bæði einka- og opinberra fyrirtækja voru á staðnum og verktakar og vísindamenn komu þarna saman til að fræðast um grænu byltinguna í mannvirkjagerð. Lesa meira... |
24.2.2010 11:42 Ég nota ekki bíl - ég stekk! Margir bentu á sparnaðinn við það að keyra minna og hefur það sparnaðarráð sennilega aldrei átt betur við en í dag. Bensín og dísel hafa hækkað mikið í verði undanfarna daga og hugsanlega ekki séð fyrir endann á þeim hækkunum. Lesa meira... |
22.2.2010 10:30 Vegleg bókagjöf til bókasafns Sesseljuhúss Sesseljuhús fékk í nýliðinni viku veglega bókagjöf frá Birgi Þórðarsyni umhverfisskipulagsfræðingi og heilbrigðisfulltrúa á Suðurlandi, en þetta er í annað sinn sem Birgir færir húsinu bókagjöf úr eigin safni. Að þessu sinni voru bókatitlarnir 44 talsins og fjalla margir þeirra um skipulag og skipulagsmál. Einnig eru í safninu bækur um arkítektúr og hönnun.
Lesa meira... |
17.2.2010 11:31 Ást, knús og kossar kosta ekkert! Margir gestir Sesseljuhúss skrifuðu um ást, umhyggju, kossa og knús þegar kom að því að draga fram það sem er ókeypis og best í heimi hér. Það er við hæfi nú þegar tími bóndadaga, konudaga og dags Valentínusar fer í hönd að hugsa um okkar nánustu og muna eftir að gefa knús og koss í dagsins önn. Lesa meira... |
15.2.2010 18:17 Axel Benediktsson ráðinn í starf fræðslufulltrúa Axel Benediktsson skipulagsfræðingur hóf fyrra mánuði störf í Sesseljuhúsi umhverfissetri. Fræðsla hefur farið mjög vaxandi í Sesseljuhúsi og fyrirséð að tekið verði við enn fleiri skólahópum í leiðsögn og fræðslu í húsinu í ár en í fyrra. Það er því kærkominn liðsauki að fá Axel til starfa og megum við þakka þetta framtak styrk Starfsorkuverkefnis Nýsköpunarmiðstöðvarinnar. Lesa meira... |
10.2.2010 11:48 Bókasöfn! Það er gott sparnaðarráð að fá sér og nota bókasafnskort. Kortin eru oft ókeypis fyrir börn, eldri borgara og öryrkja, en verði þeirra er mjög stillt í hóf fyrir aðra, til dæmis kostar árskort á Borgarbókasafni 1300 krónur. En það er líka umhverfisvænt að samnýta bækur. Lesa meira... |
2.2.2010 17:28 Drekka vatn úr krananum! Við Íslendingar búum við þau forréttindi á heimsvísu að geta nálgast hreint og ómengað drykkjarvatn nánast hvar sem er! Það er öllum aðgengilegt úr krananum og því sem næst ókeypis. Lesa meira... |
2.2.2010 17:08 Starfsneminn Alyssa kveður eftir sex vikur á Sólheimum Alyssa Tharp, nemi í umhverfisfræðum við Austin College í Texas hefur nýverið lokið sex vikna vinnutörn í Sesseljuhúsi umhverfissetri. Hún kom til Íslands rétt fyrir jól og deildi jólahátíðinni með íbúum Sólheima en í starfsnámi sínu í Sesseljuhúsi vann hún að kynningu starfsnámsins í Bandaríkjunum auk þess sem hún fræddist um sjálfbær samfélög og ritaði grein um Sólheima og sambærileg samfélög erlendis. Lesa meira... |
18.1.2010 15:26 Sparnaðarsýningin Ókeypis sett upp í Rauðakrosshúsinu Sýningin Ókeypis er allt sem er best - spörum fyrir okkur og umhverfið var sett upp í Sesseljuhúsi umhverfissetri í tilefni Menningarveislu Sólheima í sumar en hún hefur nú verið færð í Rauðakrosshúsið við Borgartún. Markmið hennar er eins og nafnið bendir til, að minna fólk á hvað er hægt að gera ókeypis. Lesa meira... |
23.12.2009 10:56 Gleðileg jól og farsælt og umhverfisvænt komandi ár Kæru vinir og velunnarar Sesseljuhúss umhverfisseturs.
Við sendum ykkur bestu óskir um gleðileg jól og umhverfisvænt og farsælt komandi ár. Þökk fyrir ánægjuleg samskipti, samstarf og stuðning á árinu sem er að líða. Hlökkum til að sjá ykkur á Sólheimum á nýja árinu.
|
15.12.2009 10:48 Þrýstingur á að samkomulag náist í Kaupmannahöfn Margvíslegar fréttir berast nú af loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Hiti hefur heldur verið að færast í leikinn eftir því sem liðið hefur á ráðstefnuna, bæði meðal þeirra sem þrýsta á samkomulag utan ráðstefnusala, sem og innan þeirra. Lesa meira... |
10.12.2009 13:03 Jólamarkaður og brúðuleikhús um helgina Sólheimar bjóða um helgina upp á jólamarkað í Kringlunni en á markaðinum verða seldar vörur sem unnar eru á hinum fjölbreyttu vinnustofum Sólheima. Opið föstudag-sunnudags á opnunartíma Kringlunnar. Á Sólheimum verður einnig mikil jólastemming, sýningar, kaffihús og listhús verða opin og boðið verður upp á brúðuleikhússýningu. Lesa meira... |
8.12.2009 09:47 Loftslagsráðstefnan sett í gær Fimmtánda loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í gær í Kaupmannahöfn. Fyrir fundinum liggur að ákveða skuldbindingar um losun gróðurhúsalofttegunda eftir að skuldbindingum Kyoto-bókunarinnar sleppir árið 2012. Lesa meira... |
3.12.2009 23:15 Aðventudagar á Sólheimum  Aðventudagar Sólheima standa nú sem hæst og býður byggðahverfið gesti velkomna á sýningar, jólamarkað og skemmtilega viðburði. Á laugardag verður jólastund kirkjuskólans kl. 12.00 í kirkjunni og kl. 14.00 mun Ívar Helgason, söngleikari flytja jólalög úr ýmsum áttum í Kaffihúsinu Grænu Könnunni. Lesa meira... |
25.11.2009 10:44 Fjórði CELL hópurinn kveður Sólheima CELL nemar kvöddu samfélagið á Sólheimum með þakkargjörðarhátíð á fimmtudagskvöldið var en hópurinn flaug til Bandaríkjanna á mánudag eftir lærdóms- og viðburðarríka þriggja mánaða dvöl á Íslandi. Lesa meira... |
20.11.2009 11:33 Opnun á sýningu Ljósaborgarnemenda og Aðventudaga Sólheima Í gær komu allir nemendur Grunnskólans Ljósaborgar ásamt kennurum og foreldrum saman á Sólheimum. Nemendur 8. bekkjar Ljósaborgarskóla sem sótt hafa námskeið í Sesseljuhúsi á haustdögum kynntu þar verkefni sín og opnuðu sýningu á munum sem þau unnu á og í samvinnu við vinnustofur Sólheima. Lesa meira... |
17.11.2009 13:25 Nemendur Grunnskólans opna Aðventudagana með umhverfissýningu Hinir árlegu Aðventudagar Sólheima hefjast fimmtudaginn 19. nóvember kl. 13:30 með opnun sýningar nemenda í Grunnskólanum Ljósaborg í Sesseljuhúsi. Nemendur 8. bekkjar sem sótt hafa valnámskeið á Sólheimum á haustönn kynna verkefni um Sólheima og umhverfismál, og leiða gesti um sýninguna. Lesa meira... |
9.11.2009 10:19 Umhverfismál og listir á Íslandi CELL hópurinn lagði land undir fót og í þetta sinn voru þemu dagsins umhverfismál og listir á Íslandi. Dagurinn hófst á Gljúfrasteini þar sem fræðst var um líf og störf Halldórs Laxness en þaðan lá leiðin á listasöfnin í Reykjavík. Lesa meira... |
2.11.2009 12:24 Vettvangsferð um Suðurlandið CELL hópurinn leggur þessa dagana lokahönd á stærstu verkefnin sem þau munu skila á önninni, svokölluð þjónustuverkefni eða service-learning projects. Hópurinn hefur samt sem áður gefið sér tíma í annan mikilvægan þátt námsins, skoðunarferðir þar sem hópurinn kynnist betur landi og þjóð.
Lesa meira... |
14.10.2009 14:07 Spennandi starf í umhverfisfræðsluStarfsemi Sesseljuhúss er enn í örri uppbyggingu og unnið að margvíslegum verkefnum til að gera rekstur hússins eins öflugan og unnt er. Umhverfissetrið fékk nýlega vilyrði fyrir styrk úr verkefninu Starfsorku, þar sem fyrirtæki eru styrkt til að ráða starfsmenn af skrá yfir atvinnuleitendur til nýsköpunarverkefna. Sesseljuhús hefur í kjölfarið auglýst stöðu fræðslufulltrúa sem starfa mun að nýsköpunarverkefnum í umhverfisfræðslu í Sesseljuhúsi. Lesa meira... |
30.9.2009 12:32 Íslenskir skólahópar heimsækja Sólheima og Sesseljuhús Þeim hópum fer mjög fjölgandi sem vilja heimsækja Sólheima og fræðast um Sesseljuhús og umhverfismál og það starf sem þar fer fram. Síðasta vika var metvika í heimsóknum íslenskra skólahópa í Sesseljuhúsi, en þrír hópar komu í vikunni til viðbótar við CELL hópinn og 8. bekk nemenda Ljósaborgarskóla sem sækja vikulega námskeið á Sólheimum á haustönn. Lesa meira... |
28.9.2009 14:58 CELL nemar spreyttu sig í hefðbundinni íslenskri byggingarlist CELL hópurinn dvaldi um helgina í best varðveitta torfbæ á Suðurlandi, það er í Austur-Meðalholtum í Gaulverjabæjarhreppi. Það voru þau Hannes Lárusson myndlistarmaður og kona hans Kristín Magnúsdóttir sem tóku á móti hópnum og fræddi Hannes þau um þróun torfbæja á Íslandi og byggingu þeirra. Lesa meira... |
21.9.2009 14:30 Laugavegsganga CELL nema og ferð í Skeiðaréttir CELL hópurinn hefur nú dvalið á Sólheimum frá því í byrjun september. Fyrsta vettvangsferð hópsins var ganga um “Laugaveginn” með leiðsögn þeirra Páls Ásgeirs Ásgeirssonar og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur. Hópurinn hóf gönguna frá Landmannalaugum þar sem byrjað var á því að baða sig í heitu laugunum en slík náttúruböð hafði enginn í hópnum upplifað fyrr. Lesa meira... |
8.9.2009 14:21 Háskólanám á Sólheimum hafið í fjórða sinn Fjórði hópur háskólanemenda hefur nú hafið nám á Sólheimum. Hópurinn samanstendur af 12 nemum en með þeim komu tveir kennarar, en forstöðumaður Sesseljuhúss hefur haft veg og vanda af skipulagningu komu hópsins og sér einnig um kennslu hópsins að hluta. Námið er skipulagt í samvinnu við CELL - Center for Ecological Living and Learning, menntasamtök í Bandaríkjunum. Um er að ræða svokallað "study abroad" prógramm þar sem nemendur taka hluta af námi sínu erlendis, en fá það svo metið til eininga þegar heim er komið.
Lesa meira... |
31.8.2009 11:50 Nýr hópur 8. bekkinga frá Ljósaborgarskóla hefur nám á Sólheimum Haustið er komið og þeim árstíðaskiptum fylgja skemmtilegar breytingar á Sólheimum. Nemendur 8. bekkjar Grunnskólans Ljósaborgar komu í síðustu viku í fyrstu heimsókn sína á Sólheima. Þetta erfyrsta heimsókn af mörgum, þvíallamiðvikudaga fram í nóvembermunu þau læra um starfið á Sólheimum og fræðast um umhverfismál í Sesseljuhúsi. Lesa meira... |
25.8.2009 12:24 Fyrsti starfsneminn til starfa í Sesseljuhúsi Katja Schreiber kom til Sólheima í gær og hóf þá strax störf við gerð námsefnis í umhverfisfræðum. Hún er fyrsti starfsneminn í Sesseljuhúsi en vonir standa til að hægt verði að bjóða fleiri starfsnemum að starfa við áhugaverð verkefni á sínu fræðasviði í nánustu framtíð. Lesa meira... |
10.7.2009 14:07 Handverk, sparnaður, alþjóðlegt samstarf, orkumál og saga Menningarveislu Sólheima lýkur í þessari viku, en lokahátíð veislunnar verður "Lífrænn markaðsdagur" á laugardaginn kemur. Mikið verður um dýrðir og munu þeir Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds skemmta á tónleikum í Sólheimakirkju kl. 14.00 á laugardaginn. Þeir munu flytja ýmsar perlur frá liðnum árum.
Gestir Sólheima ættu ekki að missa af hinum fjölbreyttu sýningum í Sesseljuhúsi umhverfissetri, en það má með sanni segja að þar sé eitthvað fyrir alla.
Lesa meira... |
22.6.2009 10:04 Íslenskar lækningajurtir - fræðsla á laugardaginn kl. 13.00 Þriðji og síðasti fræðslufundur sumarsins verður haldinn í Sesseljuhúsi á laugardaginn kl. 13.00. Þar mun Jón E. Gunnlaugsson áhugamaður um nýtingu jurta til heilsueflingar kynna íslenskar lækningajurtir, en áhugi á nýtingu lækningajurta til heilsueflingar hefur farið vaxandi að undanförnu.
Lesa meira... |
16.6.2009 14:33 Nemendur Kópavogsskóla í heimsókn á Sólheimum Landsvirkjun er einn styrktaraðila Sesseljuhúss umhverfisseturs. Fyrirtækið vinnur nú að gerð námsefnis um raforkumál fyrir yngri stig grunnskóla og starfar með Kópavogsskóla að því verkefni.
Tveir hópar 7. bekkinga heimsóttu Sólheima í vettvangsferð fyrir skömmu og dvöldu morgunlangt, enda nóg að skoða. Lesa meira... |
9.6.2009 11:59 Styrkur til uppbyggingar Orkugarðs Sólheima frá AÞS Atvinnuþróunarfélag Suðurlands veitti Sesseljuhúsi umhverfissetri styrk upp á 300 þúsund krónur til uppbyggingar Orkugarðs Sólheima og sýningahalds honum tengdum. Fyrsti hluti Orkugarðsins, það er innihluti hans; sýningin Hrein orka - Betri heimur var opnuð um helgina. Lesa meira... |
6.6.2009 10:46 Nemendur RES orkuskólans heimsóttu Sesseljuhús Nemendur Sumarskóla RES orkuskólans heimsóttu Sesseljuhús á fimmtudag og fengu fræðslu um orkumál á Íslandi, umhverfismál og sögu og sérstöðu Sólheima. Þau skoðuðu einnig sýninguna Hrein orka - Betri heimur sem opnuð verður á laugardag.
Lesa meira... |
30.5.2009 18:00 CELL hópurinn kveður eftir þriggja vikna viðburðarríka dvöl Fjórði CELL hópurinn var kvaddur með söknuði á morgunfundi á föstudaginn var. Allan föstudaginn kynntu þau svo hvert og eitt lokaverkefni sín um sjálfbærni og samfélag, og eigin áætlanir um hvernig þau ætla að lifa lífinu með hliðsjón af öllu því sem þau hafa lært síðastliðnar þrjár vikur. Lesa meira... |
25.5.2009 12:06 Fuglarnir okkar - fuglaskoðun á laugardaginn fyrir alla fjölskylduna Á laugardaginn kemur mun Jóhann Óli Hilmarsson frá Fuglavernd leiðbeina í fuglaskoðun í Sesseljuhúsi. Skoðunin hefst kl. 13.00 með fræðsluerindi í Sesseljuhúsi og verður svo fram haldið úti í náttúrunni.
Fjölmargar fuglategundir gera sér hreiður á Sólheimum vor hvert svo enginn verður svikinn af fuglasöngnum og fjölbreytileika fuglanna. Munið að taka kíkinn með!
Allir eru velkomnir á fræðslufundi Sesseljuhúss umhverfisseturs og er aðgangur ókeypis. Lesa meira... |
22.5.2009 14:24 Sólheimar og Osram hefja samstarf um sparperuvæðingu Sólheimar ses og Jóhann Ólafsson & Co sem er umboðsaðili Osram á Íslandi hafa ákveðið að efna til samstarfs og var í síðustu viku undirritaður samstarfssamningur með það að markmiði að bæta enn umhverfismál á Sólheimum og auka vitund almennings varðandi sjálfbærni og umhverfisvernd.
Átakið hófst á Sólheimum þar haldin var sparperuvika og var heimilisfólki á Sólheimum afhentar sparperur og þau fengu einnig fræðslu um eiginleika þeirra í samanburði við hefðbundnar glóperur. Lesa meira... |
11.5.2009 17:49 Fyrsta vorönnin í samstarfi við CELL menntasamtökin hafin Fjórtán manna hópur bandarískra háskólanema kom til Sólheima í morgun, en flestir nemanna eru frá New College, University of Alabama. Sesseljuhús umhverfissetur býður í samvinnu við CELL, Center for Ecological Living and Learning upp á námskeið í Menningarvistfræði, náttúrusögu og sjálfbærni og munu nemendurnir fara yfir hvaða lærdóm megi draga af reynslu Íslendinga í umhverfismálum. Lesa meira... |
4.5.2009 16:48 Lesið í landið, skemmtileg fjölskyldufræðsla í Sesseljuhúsi hefst 16. maí Fræðslufundaröðin Lesið í landið hefst í maí. Þrjá laugardaga verða stutt fræðsluerindi flutt í Sesseljuhúsi sem fylgt verður eftir með náttúruskoðun í umhverfi Sólheima. Erindin fjalla um fugla, jarðfræði og íslenskar lækningajurtir og hefjast þau öll kl. 13.00 í Sesseljuhúsi. Þetta eru tilvaldar fræðslustundir fyrir alla fjölskylduna og er aðgangur ókeypis. Lesa meira... |
4.5.2009 16:29 Vistvænir byggingarstaðlar á málþingi Framkvæmdasýslu ríkisins Á morgun, þriðjdag stendur Framkvæmdasýsla ríkisins fyrir málþingi um vistvæna byggingastaðla í húsi Orkuveitu Reykjavíkur og hefst þingið kl. 10. Stefna stjórnvalda í byggingamálum miðar nú að því að ríkið setji góð fordæmi í því að byggja á vistvænan hátt og verður gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs byggð eftir BREEAM vottunarkerfinu. Lesa meira... |
31.3.2009 18:32 CELL nemendur snúa aftur á Sólheima Þrír fyrrum CELL (Center for Ecological Living and Learning) nemendur eru þessa dagana í heimsókn á Sólheimum. Þær Sara Domek og Sarah Oakes voru í fyrsta hópi háskólanema í CELL prógramminu 2007 og Ana Luizzi var í hausthópnum 2008. Lesa meira... |
17.1.2009 18:14 Staða forstöðumanns Sesseljuhúss laust til umsóknar Í dag er laust til umsóknar starf Sesseljuhúss umhverfisseturs en núverandi forstöðumaður, Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir, mun brátt hverfa til starfa hjá Umhverfisstofnun. Starf forstöðumanns er fjölbreytt og spennandi og felur í sér fræðslu og kennslu í sjálfbærri þróun, fyrir innlenda sem erlenda skólahópa sem og almenning. Áhugasömum er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra Sólheima, Guðmund Ármann, í síma 4804401. Lesa meira... |
19.12.2008 15:44 Jólakveðjur frá Sesseljuhúsi Starfsfólk Sesseljuhúss óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Sjaldan hefur verið eins mikil þörf á samkennd og samstöðu á landinu okkar góða eins og um þessar mundir. Nú er þörf að standa saman og sýna vinsemd og kærleik í verki. |
18.12.2008 15:32 Vindmylla reist á Sólheimum Í gær var vindmylla til raforkuframleiðslu reist á Sólheimum en slíkt hefur staðið til um nokkurt skeið. Vindmyllan er hluti af Orkugarði Sólheima sem nú er unnið að og stefnt að formlegri opnun næsta vor. Það er Rótor ehf sem flytur inn vindmylluna en rafallinn er 600W af gerðinni Ampair. Lesa meira... |
1.12.2008 14:33 Sesseljuhús valið sem framlag Íslands á heimsráðsstefnu UNESCO Sesseljuhús umhverfissetur var nýlega valið sem framlag Íslands á heimsráðsstefnu UNESCO sem haldin verður í mars 2009. Um er að ræða útnefningu íslensku UNESCO-nefndarinnar um “gott dæmi um fræðslu í sjálfbærri þróun” hér á Íslandi. Auk Sesseljuhúss var eitt annað íslenskt verkefni tilnefnt.
Lesa meira... |
25.11.2008 14:51 CELL nemendurnir kveðja eftir 3ja mánaða dvöl Í gær, þann 24. nóvember kvöddu CELL nemendurnir Sólheima og Ísland og héldu til síns heima í Bandaríkjunum. Nemendurnir kvöddu með trega enda hafa þau bundist samfélaginu á Sólheima sterkum vinaböndum. Sólheimabúar geta þó strax farið að láta sér hlakka til að hitta þau aftur því 3 nemendur munu snúa til baka í maí á næsta ári.
Lesa meira... |
21.11.2008 09:24 Afrakstur haustannar 8. bekkjar Grunnskólans Ljósuborgar Sesseljuhús og Grunnskólinn Ljósaborg hafa átt gott samstarf undanfarin ár. Þetta haustið bauðst 8. bekk skólans að taka valáfanga á Sólheimum sem var í umsjón Sesseljuhúss. Í gær kynntu nemendurnir afrakstur annarinnar og var allur skólinn viðstaddur auk íbúa Sólheima.
Lesa meira... |
31.10.2008 11:06 Frábærar móttökur hjá Hitaveitu Suðurnesja Jarðvarmi er ein af undirstöðum góðra lífsgæða á Íslandi. CELL hópurinn heimsótti Hitaveitu Suðurnesja í gær og fræddist um starfsemi fyrirtækisins hjá Þorgrími Stefáni Árnasyni, öryggis-, heilbrigðis-, og umhverfisstjóra. Að leiðsögn lokinni var hópnum boðið upp á ljúffengan hádegismat og í Bláa Lónið sem engan sveik, frekar en fyrri daginn. Hitaveita Suðurnesja er einn af bakhjörlum Sesseljuhúss. Lesa meira... |
15.10.2008 11:30 Mannspekinámskeið á Sólheimum Þann 17. október næstkomandi mun fara af stað námskeið í Sesseljuhúsi á Sólheimum sem höfðar til allra þeirra sem hafa áhuga á hvað það er að vera manneskja. Þá helgi, 17. - 19. október mun Henk-Jan Meyer leiðbeina þátttakendum um 7 ára tímabilin. Námskeiðin sem eru í heildina fjögur eru óskyld í efnistökum og því er hægt að mæta á stakar helgar, ekki er nauðsynlegt að mæta allar helgar. Frekari upplýsingar er á www.mannspeki.is eða í síma 8697673. Lesa meira... |
10.10.2008 11:04 CELL á Þingvöllum og Gljúfrasteini Í gær fór CELL hópurinn til Þingvalla þar sem Einar Á. E. Sæmundsen tók á móti hópnum og fræddi um þennan sögufræga stað. Nemendurnir eru allir búnir að læra Íslandssögu og fannst tilkomumikið að ganga um og upplifa söguna. Auk Þingvalla var farið að Gljúfrasteini og gengið um hýbýli Nóbelsskáldsins með hljóðleiðsögn í eyrunum. Sú heimsókn kom skemmtilega á óvart og hyggjast nemendurnir leggast í lestur á næstunni. Lesa meira... |
8.10.2008 10:35 GAP og Landvernd með ráðstefnu í Sesseljuhúsi Um síðast liðna helgi var fróðleg námsstefna á vegum Landverndar í Sesseljuhúsi þar sem yfirskriftin var Vistvernd í verki - menntun til sjálfbærni. Þar töluðu stofnendur Vistverndar í verki í Evrópu, þau Marilyn og Alexander Mehlmann og Peter van Luttervelt, sérfræðingur í vinnustaðaráðgjöf. Margt fróðlegt kom fram í erindum og umræðum. Auk þess bauðst gestum að kanna aksturshæfni sína í aksturshermi sem notaður er við kennslu í vistakstri og að horfa á bíómynd um andlát rafmagnsbílsins. Lesa meira... |
30.9.2008 14:49 CELL gengur Laugaveginn Um síðustu helgi gekk CELL hópurinn, ásamt fleirum, hinn svokallaða Laugaveg, þ.e. frá Landmannalaugum í Þórsmörk. Fresta þurfti ferðinni um viku vegna veðurs og lagt var af stað í blíðu síðasta fimmtudag. Ferðin var í alla staði vel heppnuð undir úrvalsleiðsögn Páls Ásgeirs Ásgeirssonar og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur og heilluðust nemendur af fjölbreyttu landslagi og veðri!! Lesa meira... |
16.9.2008 14:45 Global Eco-village Network í Sesseljuhúsi Góður hópur fundaði í Sesseljuhúsi frá 11. - 14. september s.l. en það voru stofnendur og meðlimir í Global Eco-village Network og GAIA education. Hópurinn var mjög fjölþjóðlegur og ræddi stöðu og framtíð samtakanna. Sólheimar eru meðlimir í Global Eco-village Network og eru talin vera eitt af slíkum vistþorpum í heimi.
Lesa meira... |
4.9.2008 22:17 Nýr hópur háskólanema kominn til Sólheima Í gær kom til Sólheima hópur háskólanemenda frá Bandaríkjunum sem munu dvelja á Sólheimum næstu 3 mánuði við nám og störf. Þetta er annar hópurinn frá menntasamtökunum CELL sem kemur til að mennta sig á Sólheimum en sama nám var í boði síðastliðið haust. Námið byggist á námskeiðum, vettvangsferðum um landið og verkefnum sem unnin eru á Sólheimum. Verkefnin miða öll að því að gera umbætur í umhverfismálum á Sólheimum.
Lesa meira... |
28.8.2008 21:43 Viðskiptaáætlun fyrir Orkugarð Sólheima Í dag var skrifað undir samning á milli Sesseljuhúss umhverfisseturs og Primordia um gerð viðskiptaáætlunar fyrir Orkugarð Sólheima sem nú er unnið að. Sótt var um styrk til Impru nýsköpunarmiðstöðvar sem styrkir verkefnið. Lesa meira... |
28.8.2008 12:13 Fræðsla fyrir 8. bekk Í dag hófst samstarf Sesseljuhúss og Grunnskólans Ljósuborgar um kennslu fyrir 8. bekk sem mun standa yfir á 1. og 3. önn á skólaárinu sem nú er að hefjast. Á fyrri önninni munu nemendur kynnast byggðahverfinu Sólheimum og fá að heimsækja vinnustofur. Á síðari önninni verður almenn fræðsla um umhverfismál. Lesa meira... |
27.8.2008 22:30 Landsvirkjun gerist bakhjarl Sesseljuhúss umhverfisseturs Nýverið var undirritaður samningur milli Landsvirkjunar og Sesseljuhúss umhverfisseturs um að Landsvirkjun gerist bakhjarl Sesseljuhúss, þ.e. einn af aðal samstarfs- og styrktaraðilum hússins. Helsta markmið samningsin er að samnýta þekkingu beggja aðila við uppbyggingu á umhverfisfræðslu fyrir skólahópa og ferðamenn.
Lesa meira... |
Allar fréttir
|
| |
|
|
|
| |
Sesseljuhús umhverfissetur, Sólheimum, 801 Selfoss Sími: 480 4470 Netfang: sesseljuhus@solheimar.is
|
|