|
 |
 |
 |




|
 |
| |
7.9.2010 14:16 |
Fræðslufundur í Sesseljuhúsi laugardaginn 11. september kl. 13:00 |
|
Nytjasveppir í náttúru Íslands
|
|
|
Laugardaginn 11.september kl. 13 verður boðið upp á klukkutíma langa fræðslu og gönguferð á vegum Sesseljuhúss þar sem Michele Rebora mun leiðbeina og fræða fólk um íslenska nytjasveppi.
Lesa meira...
|
|
| |
24.8.2010 09:53 | | |
| Laugardaginn 28. ágúst mun Rannveig Guicharnaud, Ph.d. jarðvegsfræðingur, fjalla um áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á umhverfið. Lesa meira... |
| 18.8.2010 14:30 | | | Fræðslufundur - Umhverfisvæn ferðaþjónusta | Laugardaginn 21.ágúst klukkan 13.00 mun Guðrún Bergmann halda fræðslufund um umhverfisvæna ferðaþjónustu, ferðaþjónustu framtíðarinnar. Áhugaverður fundur fyrir alla sem eru í ferðaþjónustugeiranum. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Lesa meira... |
|
13.8.2010 18:01 | Uppskeruhátíð | |
| Á laugardaginn kemur verður nokkurs konar uppskeruhátíð á Sólheimum á
hinum lífræna degi þegar afrakstur sumarsins verður til sölu. Slegið
verður upp markaðstjöldum fyrir utan verslunina Völu þar sem lífrænt
grænmeti, tré og blóm verða til sölu auk listmuna úr listasmiðjum
Sólheima. Auk þess verður ýmislegt fleira um að vera, má þar nefna
tónleika með Ragnari Bjarnasyni og Þorgeiri Ástvaldssyni, leiðsögn um
trjásafn Sólheima að ógleymdum þeim Begga og Pacas sem munu elda
lífræna rétti úr uppskeru sumarsins. Skátar frá Sólheimum munu selja
happdrættismiða, Sólheimakórinn syngur o.fl. o.fl.
Lesa meira... |
| 4.8.2010 09:56 | Fræðslufundur - Hagnýting íslenskra jurta | |
| Einar Logi Einarsson grasalæknir fjallar um tínslu og vinnslu íslenskra jurta í Sesseljuhúsi Sólheimum laugardaginn 7. ágúst kl 13.00. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Lesa meira... |
|
27.7.2010 11:52 | | | Sparnaðaráð vikunar | Sparnaðarráð vikunar eru hugmyndir sem gestir Sesseljuhús komu með seinasta sumar í tengslum við sýninguna Ókeypis.
Lesa meira... |
| 26.7.2010 16:06 | Áhugaverðir gestir í Sesseljuhúsi | |
|  Þessa stundina eru áhugaverðir gestir staddir hjá okkur í Sesseljuhúsi. Þetta er franska parið Damien Artero og Delphine Million sem ferðast um landið þvert og endilangt á tvímenningsreiðhjóli með 10 mánaða dóttur sína, Lirio, í aftanívagni. Lesa meira... |
|
14.7.2010 13:40 | David Burt hefur hafið störf í Sesseljuhúsi sem starfsnemi | |
| David Burt hefur hafið störf í Sesseljuhúsi sem starfsnemi. David kemur frá Bandaríkjunum og er nemi í The Ohio State University, Columbus, Ohio þar sem hann er að læra Arkítektúr. Nú eru fjórir starfsnemar hjá okkur í Sesseljuhúsi og einn sjálfboðaliði sem eru að vinna frábært starf. Við bjóðum þau öll velkomin. Lesa meira... |
| |
13.7.2010 10:46 | Fræðslufundur um vistvæna tækni | |
| Andri Ottesen framkvæmdastjóri Carbon Recycling International mun halda fræðsluerindi laugardaginn 17.júlí kl 13:00. Lesa meira... |
| 29.6.2010 13:27 | | | Keyra minna, hjóla meira, ganga oftar. | | Lesa meira... |
|
28.6.2010 15:29 | | |
| Það eru fjórir starfsnemar í Sesseljuhúsi sem hófu störf í byrjun júní. Þetta eru þau Anne Blouin frá Frakklandi, Spencer Nietmann, Allison Gorman og Angel Welp frá Bandaríkjunum. Lesa meira... |
| 28.6.2010 14:27 | Frönsku starfsnemarnir fara á morgun eftir mánaðar dvöl | |
| Þau Anne Peridy, Benjamin Renau og Edmée Fradin hafa verið hjá okkur í mánuð og ljúka starfsnámi sínu hér í Sesseljuhúsi á morgun. Lesa meira... |
|
28.6.2010 11:30 | Sesseljuhús hefur hlotið tvo fjárstyrki seinustu vikurnar | |
| Sesseljuhús hefur hlotið tvo fjárstyrki seinustu vikurnar. Annarsvegar er það styrkur frá Alcan Rio Tinto í tengslum við verkefni Orkugarðs og hinsvegar er það styrkur úr Orkusjóði á rannsóknum á orkunotkun í sjálfbærum byggingum (Sesseljuhúsi).  Lesa meira... |
| 28.6.2010 11:06 | Heimsókn Háskólanema | |
| Caitlin Wilson Brötzmann kom í heimsókn í Sesseljuhús miðvikudaginn 9.júní. Með henni voru um 20 bandarískir háskólanemendur í umhverfisfræði. Lesa meira... |
|
24.6.2010 09:32 | Líffræðifyrirlestur í Sesseljuhúsi laugardaginn 26. júní kl. 13:00 | |
|  Hildur Vésteinsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun mun fjalla um líffræðilega fjölbreytni á laugardaginn 26.júní kl 13.00. Lesa meira... |
| 16.6.2010 16:31 | Jarðfræðiganga um Sólheima, laugardaginn 19. júní kl. 13:00 | Fræðslufundur í Sesseljuhúsi: Landslagið með gleraugum jarðfræðingsins |
|  Jón Eiríksson, jarðfræðingur við Raunvísindandeild Háskóla íslands mun fjalla um jarðfræðina í landi Sólheima og taka fólk í fræðslugöngu. Fræðslufundurinn hefst kl. 13:00 laugardaginn 19. júní og stendur í um einn og hálfan tíma. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis! |
|
9.6.2010 10:04 | Dagur hinna villtu blóma | |
| Í tilefni af degi hinna villtu blóma, sunnudaginn 13. júní, mun Sesseljuhús standa fyrir blómaskoðun. Það er Sigurður H. Magnússon, plöntuvistfræðingur, sem leiðir gönguna og hefst hún kl. 13:00. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Lesa meira... |
| 2.6.2010 14:47 | Sýningin Sjálfbær byggð – Skipulag – hönnun opnar 5.júní kl 14:00 | |
|  Sesseljuhús umhverfissetur , Landbúnaðarháskóli Íslands og Skipulagsfræðingarfélag Íslands bjóða til sýningar í Sesseljuhúsi Sólheimum laugardaginn 5.júní kl 14:00. Sýningin er lokahnykkurinn á valnámskeiði M.s. námi í skipulagsfræði.
Í námskeiðinu rannsökuðu nemendur sjálfbært skipulag sem tæki til að stuðla að umhverfisvænna og sjálfbærar manngerðu umhverfi. Niðurstöður rannsóknanna eru settar fram á myndrænan hátt á veggspjöldum.
Lesa meira... |
|
25.5.2010 11:35 | Að lesa í landið - fræðslufundaröð 2010 | |
|  Sesseljuhús mun, líkt og undanfarin ár, standa fyrir röð fræðslufunda um ýmislegt tengt umhverfismálum. Fundirnir verða á laugardögum og sunnudögum í sumar og hefjast þeir kl. 13, þeir eru öllum opnir og aðgangur ókeypis. Dagskrá fræðslufundanna má finna hér.
Lesa meira... |
| 7.5.2010 14:30 | Samstarf við Landbúnaðarháskóla Íslands | |
| Sesseljuhús hefur nýhafið samstarf við skipulagsdeild Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og standa nemendur í námskeiðinu sjálfbær byggð – skipulag – hönnunı að gerð sýningar í samvinnu við starfsmenn Sesseljuhúss um sjálfbæra byggð. Á sýningunni verða atriði í hönnun og skipulagi sjálfbærra byggða kynnt og dregin fram atriði sem sýna fram á kosti sjálfbærra byggða fyrir einstaklinga og umhverfi. Lesa meira... |
|
4.3.2010 17:23 | Sparnaðarráð vikunnar frá gestum Sesseljuhúss | |
|  Það er ýmislegt sem fæst ókeypis í heimi hér, og margir segja að það besta í lífinu sé einmitt ókeypis. Það er því um að gera að minna sig á hvað er hægt að gera til að létta manni sjálfum lífið og þeim sem eru í kring um mann. Rannsóknir sýna að við það eitt að brosa, jafnvel þó það sé uppgerðarbros, sendist gleðihormón til heilans, og þannig er í raun hægt að plata okkur sjálf til að vera örlítið hamingjusamari. Lesa meira... |
| 1.3.2010 15:32 | Stofnfundur var haldinn fimmtudaginn 23. febrúar | |
|  Kynningar- og stofnfundir Vistvænnar byggðar - Vettvangs um sjálfbæra þróun í mannvirkjagerð var haldinn á fimmtudaginn í síðustu viku í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur. Áhugi á málefninu var mikill og komu alls 80 manns á fundinn úr mörgum mismunandi áttum. Fulltrúar bæði einka- og opinberra fyrirtækja voru á staðnum og verktakar og vísindamenn komu þarna saman til að fræðast um grænu byltinguna í mannvirkjagerð. Lesa meira... |
|
24.2.2010 11:42 | Sparnaðarráð vikunnar frá gestum Sesseljuhúss | |
|  Margir bentu á sparnaðinn við það að keyra minna og hefur það sparnaðarráð sennilega aldrei átt betur við en í dag. Bensín og dísel hafa hækkað mikið í verði undanfarna daga og hugsanlega ekki séð fyrir endann á þeim hækkunum. Lesa meira... |
| 22.2.2010 10:30 | Birgir Þórðarson kom færandi hendi | |
|  Sesseljuhús fékk í nýliðinni viku veglega bókagjöf frá Birgi Þórðarsyni umhverfisskipulagsfræðingi og heilbrigðisfulltrúa á Suðurlandi, en þetta er í annað sinn sem Birgir færir húsinu bókagjöf úr eigin safni. Að þessu sinni voru bókatitlarnir 44 talsins og fjalla margir þeirra um skipulag og skipulagsmál. Einnig eru í safninu bækur um arkítektúr og hönnun. Lesa meira... |
|
17.2.2010 11:31 | Sparnaðarráð vikunnar frá gestum Sesseljuhúss | |
|  Margir gestir Sesseljuhúss skrifuðu um ást, umhyggju, kossa og knús þegar kom að því að draga fram það sem er ókeypis og best í heimi hér. Það er við hæfi nú þegar tími bóndadaga, konudaga og dags Valentínusar fer í hönd að hugsa um okkar nánustu og muna eftir að gefa knús og koss í dagsins önn. Lesa meira... |
| 15.2.2010 18:17 | Starfsorka styrkir Sesseljuhús umhverfissetur | |
|  Axel Benediktsson skipulagsfræðingur hóf fyrra mánuði störf í Sesseljuhúsi umhverfissetri. Fræðsla hefur farið mjög vaxandi í Sesseljuhúsi og fyrirséð að tekið verði við enn fleiri skólahópum í leiðsögn og fræðslu í húsinu í ár en í fyrra. Það er því kærkominn liðsauki að fá Axel til starfa og megum við þakka þetta framtak styrk Starfsorkuverkefnis Nýsköpunarmiðstöðvarinnar. Lesa meira... |
|
10.2.2010 11:48 | Sparnaðarráð vikunnar frá gestum Sesseljuhúss | |
|  Það er gott sparnaðarráð að fá sér og nota bókasafnskort. Kortin eru oft ókeypis fyrir börn, eldri borgara og öryrkja, en verði þeirra er mjög stillt í hóf fyrir aðra, til dæmis kostar árskort á Borgarbókasafni 1300 krónur. En það er líka umhverfisvænt að samnýta bækur. Lesa meira... |
| 2.2.2010 17:28 | Sparnaðarráð vikunnar frá gestum Sesseljuhúss | |
|  Við Íslendingar búum við þau forréttindi á heimsvísu að geta nálgast hreint og ómengað drykkjarvatn nánast hvar sem er! Það er öllum aðgengilegt úr krananum og því sem næst ókeypis. Lesa meira... |
|
2.2.2010 17:08 | Starfsnám í Sesseljuhúsi | |
|  Alyssa Tharp, nemi í umhverfisfræðum við Austin College í Texas hefur nýverið lokið sex vikna vinnutörn í Sesseljuhúsi umhverfissetri. Hún kom til Íslands rétt fyrir jól og deildi jólahátíðinni með íbúum Sólheima en í starfsnámi sínu í Sesseljuhúsi vann hún að kynningu starfsnámsins í Bandaríkjunum auk þess sem hún fræddist um sjálfbær samfélög og ritaði grein um Sólheima og sambærileg samfélög erlendis. Lesa meira... |
| 26.1.2010 10:50 | Sparnaðarráð vikunnar frá gestum Sesseljuhúss | |
|  Sparnaðarráð vikunnar frá gestum Sesseljuhúss er "Að láta bjóða sér oft í mat". Lesa meira... |
|
18.1.2010 15:26 | Rauðakrosshúsið og Sesseljuhús spara fyrir okkur og umhverfið | |
|  Sýningin Ókeypis er allt sem er best - spörum fyrir okkur og umhverfið var sett upp í Sesseljuhúsi umhverfissetri í tilefni Menningarveislu Sólheima í sumar en hún hefur nú verið færð í Rauðakrosshúsið við Borgartún. Markmið hennar er eins og nafnið bendir til, að minna fólk á hvað er hægt að gera ókeypis. Lesa meira... |
| 8.1.2010 15:33 | Ársskýrsla Sesseljuhúss 2009 | |
|  Mikil aukning í heimsóknum skólahópa á öllum skólastigum setti svip sinn á starf Sesseljuhúss á árinu. Í ársskýrslu Sesseljuhúss er grein gerð fyrir helstu viðburðum ársins og starfinu árið 2009. Lesa meira... |
|
23.12.2009 10:56 | Jólakveðja | Gleðileg jól og farsælt og umhverfisvænt komandi ár |
|  Kæru vinir og velunnarar Sesseljuhúss umhverfisseturs. Við sendum ykkur bestu óskir um gleðileg jól og umhverfisvænt og farsælt komandi ár. Þökk fyrir ánægjuleg samskipti, samstarf og stuðning á árinu sem er að líða.Hlökkum til að sjá ykkur á Sólheimum á nýja árinu. |
| 15.12.2009 10:48 | Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna | |
|  Margvíslegar fréttir berast nú af loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Hiti hefur heldur verið að færast í leikinn eftir því sem liðið hefur á ráðstefnuna, bæði meðal þeirra sem þrýsta á samkomulag utan ráðstefnusala, sem og innan þeirra. Lesa meira... |
|
10.12.2009 13:03 | Aðventudagar Sólheima | |
|  Sólheimar bjóða um helgina upp á jólamarkað í Kringlunni en á markaðinum verða seldar vörur sem unnar eru á hinum fjölbreyttu vinnustofum Sólheima. Opið föstudag-sunnudags á opnunartíma Kringlunnar. Á Sólheimum verður einnig mikil jólastemming, sýningar, kaffihús og listhús verða opin og boðið verður upp á brúðuleikhússýningu. Lesa meira... |
| 8.12.2009 09:47 | Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna | |
|  Fimmtánda loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í gær í Kaupmannahöfn. Fyrir fundinum liggur að ákveða skuldbindingar um losun gróðurhúsalofttegunda eftir að skuldbindingum Kyoto-bókunarinnar sleppir árið 2012. Lesa meira... |
|
3.12.2009 23:15 | Sýningar og viðburðir í desember | |
|  Aðventudagar Sólheima standa nú sem hæst og býður byggðahverfið gesti velkomna á sýningar, jólamarkað og skemmtilega viðburði. Á laugardag verður jólastund kirkjuskólans kl. 12.00 í kirkjunni og kl. 14.00 mun Ívar Helgason, söngleikari flytja jólalög úr ýmsum áttum í Kaffihúsinu Grænu Könnunni. Lesa meira... |
| 25.11.2009 10:44 | Nemar héldu heim á leið | |
|  CELL nemar kvöddu samfélagið á Sólheimum með þakkargjörðarhátíð á fimmtudagskvöldið var en hópurinn flaug til Bandaríkjanna á mánudag eftir lærdóms- og viðburðarríka þriggja mánaða dvöl á Íslandi. Lesa meira... |
|
20.11.2009 11:33 | Aðventudagar Sólheima | |
|  Í gær komu allir nemendur Grunnskólans Ljósaborgar ásamt kennurum og foreldrum saman á Sólheimum. Nemendur 8. bekkjar Ljósaborgarskóla sem sótt hafa námskeið í Sesseljuhúsi á haustdögum kynntu þar verkefni sín og opnuðu sýningu á munum sem þau unnu á og í samvinnu við vinnustofur Sólheima. Lesa meira... |
| 17.11.2009 13:25 | Aðventudagar Sólheima hefjast á fimmtudaginn | |
|  Hinir árlegu Aðventudagar Sólheima hefjast fimmtudaginn 19. nóvember kl. 13:30 með opnun sýningar nemenda í Grunnskólanum Ljósaborg í Sesseljuhúsi. Nemendur 8. bekkjar sem sótt hafa valnámskeið á Sólheimum á haustönn kynna verkefni um Sólheima og umhverfismál, og leiða gesti um sýninguna. Lesa meira... |
|
17.11.2009 12:01 | Hvað býr að baki lífefldri ræktun? | |
|  Dagana 27.-29. nóvember nk. verður haldið námskeið í lífefldri / biodynamískri ræktun á Sólheimum og í Skaftholti. Leiðbeinandi verður Henk-Jan Meyer. Lesa meira... |
| 15.11.2009 13:52 | Pílagrímaferð í Borgarfjörð | |
|  CELL hópurinn fór í tveggja daga vettvangsferð í Borgarfjörð á dögunum. Þangað var margt að sækja en hvatinn að ferðinni var mikill áhugi hópsins á hinu merkilega íslenska landnámsgeitakyni sem Jóhanna bóndi á Háafelli hefur hlúið að um árabil. Lesa meira... |
|
9.11.2009 10:19 | Vettvangsferð CELL nema | |
|  CELL hópurinn lagði land undir fót og í þetta sinn voru þemu dagsins umhverfismál og listir á Íslandi. Dagurinn hófst á Gljúfrasteini þar sem fræðst var um líf og störf Halldórs Laxness en þaðan lá leiðin á listasöfnin í Reykjavík. Lesa meira... |
| 2.11.2009 12:24 | CELL hópurinn á faraldsfæti | |
|  CELL hópurinn leggur þessa dagana lokahönd á stærstu verkefnin sem þau munu skila á önninni, svokölluð þjónustuverkefni eða service-learning projects. Hópurinn hefur samt sem áður gefið sér tíma í annan mikilvægan þátt námsins, skoðunarferðir þar sem hópurinn kynnist betur landi og þjóð. Lesa meira... |
|
16.10.2009 15:43 | Landbætur og uppgræðsla á Sólheimum | |
|  CELL hópurinn tók heldur betur til hendinni í vikunni við plöntun í skjólbelti við Sólheima. Verkefnið er hluti af þjónustulærdómi svokölluðum, eða service learning, þar sem nemendur vinna umhverfisverkefni Sólheimum til hagsbóta. Lesa meira... |
| 14.10.2009 14:07 | Auglýst eftir fræðslufulltrúa í Sesseljuhús | |
| Starfsemi Sesseljuhúss er enn í örri uppbyggingu og unnið að margvíslegum verkefnum til að gera rekstur hússins eins öflugan og unnt er. Umhverfissetrið fékk nýlega vilyrði fyrir styrk úr verkefninu Starfsorku, þar sem fyrirtæki eru styrkt til að ráða starfsmenn af skrá yfir atvinnuleitendur til nýsköpunarverkefna. Sesseljuhús hefur í kjölfarið auglýst stöðu fræðslufulltrúa sem starfa mun að nýsköpunarverkefnum í umhverfisfræðslu í Sesseljuhúsi. Lesa meira... |
|
13.10.2009 10:59 | Háskólanemar á Sólheimum | |
|  Mikið hefur verið um að vera hjá CELL hópnum undanfarna daga því bæði verkefnaskil og próflestur hafa verið fyrirferðarmikil í dagskrá hópsins sem keppst hefur við að lesa og klára verkefni í tæka tíð. Lesa meira... |
| 30.9.2009 12:32 | Haustið byrjar með krafti | |
|  Þeim hópum fer mjög fjölgandi sem vilja heimsækja Sólheima og fræðast um Sesseljuhús og umhverfismál og það starf sem þar fer fram. Síðasta vika var metvika í heimsóknum íslenskra skólahópa í Sesseljuhúsi, en þrír hópar komu í vikunni til viðbótar við CELL hópinn og 8. bekk nemenda Ljósaborgarskóla sem sækja vikulega námskeið á Sólheimum á haustönn. Lesa meira... |
|
28.9.2009 14:58 | Íslenskir torfbæir og sjálfbærar byggingar | |
|  CELL hópurinn dvaldi um helgina í best varðveitta torfbæ á Suðurlandi, það er í Austur-Meðalholtum í Gaulverjabæjarhreppi. Það voru þau Hannes Lárusson myndlistarmaður og kona hans Kristín Magnúsdóttir sem tóku á móti hópnum og fræddi Hannes þau um þróun torfbæja á Íslandi og byggingu þeirra. Lesa meira... |
| 21.9.2009 14:30 | Þétt dagskrá hjá háskólanemum á Sólheimum | |
|  CELL hópurinn hefur nú dvalið á Sólheimum frá því í byrjun september. Fyrsta vettvangsferð hópsins var ganga um “Laugaveginn” með leiðsögn þeirra Páls Ásgeirs Ásgeirssonar og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur. Hópurinn hóf gönguna frá Landmannalaugum þar sem byrjað var á því að baða sig í heitu laugunum en slík náttúruböð hafði enginn í hópnum upplifað fyrr. Lesa meira... |
|
8.9.2009 14:21 | 14 manna CELL hópur kom á Sólheima í vikunni | |
|  Fjórði hópur háskólanemenda hefur nú hafið nám á Sólheimum. Hópurinn samanstendur af 12 nemum en með þeim komu tveir kennarar, en forstöðumaður Sesseljuhúss hefur haft veg og vanda af skipulagningu komu hópsins og sér einnig um kennslu hópsins að hluta. Námið er skipulagt í samvinnu við CELL - Center for Ecological Living and Learning, menntasamtök í Bandaríkjunum. Um er að ræða svokallað "study abroad" prógramm þar sem nemendur taka hluta af námi sínu erlendis, en fá það svo metið til eininga þegar heim er komið. Lesa meira... |
| 31.8.2009 11:50 | Samstarf Sesseljuhúss og Grunnskólans Ljósaborgar | |
|  Haustið er komið og þeim árstíðaskiptum fylgja skemmtilegar breytingar á Sólheimum. Nemendur 8. bekkjar Grunnskólans Ljósaborgar komu í síðustu viku í fyrstu heimsókn sína á Sólheima. Þetta erfyrsta heimsókn af mörgum, þvíallamiðvikudaga fram í nóvembermunu þau læra um starfið á Sólheimum og fræðast um umhverfismál í Sesseljuhúsi. Lesa meira... |
|
25.8.2009 12:24 | | |
|  Katja Schreiber kom til Sólheima í gær og hóf þá strax störf við gerð námsefnis í umhverfisfræðum. Hún er fyrsti starfsneminn í Sesseljuhúsi en vonir standa til að hægt verði að bjóða fleiri starfsnemum að starfa við áhugaverð verkefni á sínu fræðasviði í nánustu framtíð. Lesa meira... |
| 11.8.2009 15:42 | | |
|  Í sumar var komið fyrir veðurathugunarstöð á þaki Sesseljuhúss umhverfisseturs. Stöðin er gjöf frá Jóni Ívarssyni starfsmanni á Sólheimum. Lesa meira... |
|
4.8.2009 11:53 | Menningarveisla Sólheima | |
|  Laugardaginn 8. ágúst n.k verður hinn árlegi markaðsdagur Sólheima þar sem fram fer kynning og sala á lífrænt ræktuðu grænmeti frá Garðyrkjustöðinni Sunnu á Sólheimum ásamt ýmsu lífrænu góðgæti frá Engi, Hæðarenda og fleirum. Lesa meira... |
| 10.7.2009 14:07 | Menningarveisla Sólheima | | Eitthvað fyrir alla í Sesseljuhúsi umhverfissetri |  Menningarveislu Sólheima lýkur í þessari viku, en lokahátíð veislunnar verður "Lífrænn markaðsdagur" á laugardaginn kemur. Mikið verður um dýrðir og munu þeir Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvalds skemmta á tónleikum í Sólheimakirkju kl. 14.00 á laugardaginn. Þeir munu flytja ýmsar perlur frá liðnum árum.Gestir Sólheima ættu ekki að missa af hinum fjölbreyttu sýningum í Sesseljuhúsi umhverfissetri, en það má með sanni segja að þar sé eitthvað fyrir alla. Lesa meira... |
|
10.7.2009 12:06 | Námskeið í Sesseljuhúsi | |
|  Námskeið verður haldið dagana 17.-19. júlí um biodynamíska eða lífrænt ræktaða fæðu undir yfirskriftinni Matur - frá jarðvegi til maga! Lesa meira... |
| 1.7.2009 12:24 | Lesið í landið 2009 | |
|  Síðasti fræðslufundur sumarsins í Sesseljuhúsi umhverfissetri var haldinn á laugardaginn var og mættu um eða yfir 90 manns til fundarins. Lesa meira... |
|
22.6.2009 10:04 | Lesið í landið - fræðslufundaröð | |
|  Þriðji og síðasti fræðslufundur sumarsins verður haldinn í Sesseljuhúsi á laugardaginn kl. 13.00. Þar mun Jón E. Gunnlaugsson áhugamaður um nýtingu jurta til heilsueflingar kynna íslenskar lækningajurtir, en áhugi á nýtingu lækningajurta til heilsueflingar hefur farið vaxandi að undanförnu. Lesa meira... |
| 16.6.2009 14:56 | Menningarveisla Sólheima | |
|  Menningarveisla Sólheima var sett 6. júní við það tilefni voru opnaðar fimm sýningar í Sesseljuhúsi umhverfissetri. Ár hvert er haldin sýning með umhverfistengdu þema og í ár er fókusinn á hvað er hægt að gera ókeypis og hvernig það sem er gott fyrir budduna er ósjaldan líka gott fyrir umhverfið. Lesa meira... |
|
16.6.2009 14:33 | Samstarf Landsvirkjunar og Sesseljuhúss | |
|  Landsvirkjun er einn styrktaraðila Sesseljuhúss umhverfisseturs. Fyrirtækið vinnur nú að gerð námsefnis um raforkumál fyrir yngri stig grunnskóla og starfar með Kópavogsskóla að því verkefni. Tveir hópar 7. bekkinga heimsóttu Sólheima í vettvangsferð fyrir skömmu og dvöldu morgunlangt, enda nóg að skoða. Lesa meira... |
| 10.6.2009 15:58 | Grunnskólanemar í Sesseljuhúsi | |
|  Fyrsti bekkurinn sem lýkur valnámskeiðum hjá Sesseljuhúsi umhverfissetri útskrifuðust sl. föstudag frá Grunnskólanum Ljósaborg. Lesa meira... |
|
9.6.2009 11:59 | Orkugarður Sólheima | |
|  Atvinnuþróunarfélag Suðurlands veitti Sesseljuhúsi umhverfissetri styrk upp á 300 þúsund krónur til uppbyggingar Orkugarðs Sólheima og sýningahalds honum tengdum. Fyrsti hluti Orkugarðsins, það er innihluti hans; sýningin Hrein orka - Betri heimur var opnuð um helgina. Lesa meira... |
| 6.6.2009 10:57 | Menningarveisla Sólheima 2009 | |
|  Menningarveisla Sólheima verður sett í dag. Í Sesseljuhúsi umhverfissetri verða að þessu sinni fimm sýningar. Lesa meira... |
|
6.6.2009 10:46 | Heimsókn í Sesseljuhús | |
|  Nemendur Sumarskóla RES orkuskólans heimsóttu Sesseljuhús á fimmtudag og fengu fræðslu um orkumál á Íslandi, umhverfismál og sögu og sérstöðu Sólheima. Þau skoðuðu einnig sýninguna Hrein orka - Betri heimur sem opnuð verður á laugardag. Lesa meira... |
| 30.5.2009 18:00 | Bandarískir háskólanemar á Sólheimum | |
|  Fjórði CELL hópurinn var kvaddur með söknuði á morgunfundi á föstudaginn var. Allan föstudaginn kynntu þau svo hvert og eitt lokaverkefni sín um sjálfbærni og samfélag, og eigin áætlanir um hvernig þau ætla að lifa lífinu með hliðsjón af öllu því sem þau hafa lært síðastliðnar þrjár vikur. Lesa meira... |
|
30.5.2009 16:19 | Lesið í landið - Fræðslufundaröð Sesseljuhúss | |
|  Það viðraði vel til fuglaskoðunar á Sólheimum í dag þegar á sjötta tug fuglaáhugamanna á öllum aldri kom í fuglaskoðun í Sesseljuhúsi. Lesa meira... |
| 25.5.2009 12:06 | Lesið í landið - fræðslufundaröð | |
|  Á laugardaginn kemur mun Jóhann Óli Hilmarsson frá Fuglavernd leiðbeina í fuglaskoðun í Sesseljuhúsi. Skoðunin hefst kl. 13.00 með fræðsluerindi í Sesseljuhúsi og verður svo fram haldið úti í náttúrunni. Fjölmargar fuglategundir gera sér hreiður á Sólheimum vor hvert svo enginn verður svikinn af fuglasöngnum og fjölbreytileika fuglanna. Munið að taka kíkinn með!Allir eru velkomnir á fræðslufundi Sesseljuhúss umhverfisseturs og er aðgangur ókeypis. Lesa meira... |
|
22.5.2009 14:24 | Sparperur margborga sig bæði fyrir okkur og umhverfið | |
|  Sólheimar ses og Jóhann Ólafsson & Co sem er umboðsaðili Osram á Íslandi hafa ákveðið að efna til samstarfs og var í síðustu viku undirritaður samstarfssamningur með það að markmiði að bæta enn umhverfismál á Sólheimum og auka vitund almennings varðandi sjálfbærni og umhverfisvernd. Átakið hófst á Sólheimum þar haldin var sparperuvika og var heimilisfólki á Sólheimum afhentar sparperur og þau fengu einnig fræðslu um eiginleika þeirra í samanburði við hefðbundnar glóperur. Lesa meira... |
| 19.5.2009 12:06 | Bandarískir háskólanemar á Sólheimum | |
|  CELL hópurinn hefur nú dvalist rúma viku við nám og störf á Íslandi. Fyrstu vikuna dvöldu þau á Sólheimum og fræddust um íslenska sögu, tungu og menningu auk þess sem þau sökktu sér í fræðslu um umhverfismál. Lesa meira... |
|
19.5.2009 11:54 | Lesið í landið – hvernig myndaðist fjallahringurinn? | |
|  Síðastliðinn laugardag var haldinn fyrsti fræðslufundur sumarsins í röðinni Lesið í landið, í Sesseljuhúsi umhverfissetri. Lesa meira... |
| 14.5.2009 23:01 | Fjöll og jarðfræði fyrir alla fjölskylduna | |
|  Fyrsta fræðslustund sumarsins verður nú á laugardaginn 16. maí kl. 13.00. Jón Eiríksson jarðfræðingur á Jarðvísindastofnun Háskólans mun segja frá landslaginu frá sjónarhóli jarðfræðingsins; því sem að augum ber og skýrir tilurð fjallahringsins umhverfis Sólheima. Lesa meira... |
|
11.5.2009 17:49 | Háskólanám í sjálfbærni og samfélagsmálum á Sólheimum | |
|  Fjórtán manna hópur bandarískra háskólanema kom til Sólheima í morgun, en flestir nemanna eru frá New College, University of Alabama. Sesseljuhús umhverfissetur býður í samvinnu við CELL, Center for Ecological Living and Learning upp á námskeið í Menningarvistfræði, náttúrusögu og sjálfbærni og munu nemendurnir fara yfir hvaða lærdóm megi draga af reynslu Íslendinga í umhverfismálum. Lesa meira... |
| 4.5.2009 16:48 | Fræðslfundaröð Sesseljuhúss umhverfisseturs 2009 | |
|  Fræðslufundaröðin Lesið í landið hefst í maí. Þrjá laugardaga verða stutt fræðsluerindi flutt í Sesseljuhúsi sem fylgt verður eftir með náttúruskoðun í umhverfi Sólheima. Erindin fjalla um fugla, jarðfræði og íslenskar lækningajurtir og hefjast þau öll kl. 13.00 í Sesseljuhúsi. Þetta eru tilvaldar fræðslustundir fyrir alla fjölskylduna og er aðgangur ókeypis. Lesa meira... |
|
4.5.2009 16:29 | Vistvænar byggingar | |
|  Á morgun, þriðjdag stendur Framkvæmdasýsla ríkisins fyrir málþingi um vistvæna byggingastaðla í húsi Orkuveitu Reykjavíkur og hefst þingið kl. 10. Stefna stjórnvalda í byggingamálum miðar nú að því að ríkið setji góð fordæmi í því að byggja á vistvænan hátt og verður gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs byggð eftir BREEAM vottunarkerfinu. Lesa meira... |
| 29.4.2009 11:20 | Samstarf Grunnskólans Ljósaborgar og Sesseljuhúss | |
|  Nemendur 8. bekkjar í Ljósaborgarskóla á Borg í Grímsnesi sækja nú sex vikna námskeið um sjálfbærni og samfélag manna í Sesseljuhúsi. Lesa meira... |
|
24.4.2009 14:52 | Ársskýrsla Sesseljuhúss 2008 aðgengileg á netinu | |
|  Sesseljuhús býður upp á margskonar fræðslu og fyrir fjölbreytta hópa. Árið 2008 einkenndist af aukinni áherslu á fræðslu fyrir innlenda og erlenda skólahópa auk náttúruskoðana fyrir fjölskyldur yfir sumartímann. Hvort tveggja er einnig áberandi í starfinu á þessu ári. Lesa meira... |
| 16.4.2009 15:45 | Ánægjuleg þróun í byggingasögunni | |
|  Í dag tók umhverfisráðherra Kolbrún Halldórsdóttir fyrstu skóflustunguna af Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs á Skriðuklaustri. Áformað er að byggingin verði byggð samkvæmt vottuðum vistvænum byggingarstöðlum. Lesa meira... |
|
15.4.2009 09:38 | Fræðst um Sólheima | |
| Nemendur í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands heimsóttu Sesseljuhús fyrir skömmu og fræddust um sjálfbæra þróun, sjálfbærni á Íslandi, orkumál, og sögu, sjálfbærni og samfélagsmál á Sólheimum. Lesa meira... |
| 14.4.2009 10:17 | Fróðleikskorn | |
|  Við hlýnun loftslags bráðna jöklar og við það léttist það þunga farg sem ísbreiðurnar eru. Land á norðurhjara jarðarinnar hefur risið sem svarar einum sentimetra á ári að jafnaði frá lokum ísaldar fyrir 10.000 árum síðan. Lesa meira... |
|
4.4.2009 18:16 | Vorboðar í Sesseljuhúsi | |
|  Hópur 60 nemenda í ferðamálafræðum í Háskóla Íslands heimsótti Sesseljuhús umhverfissetur í dag, en nemarnir sækja námskeið um ferðamennsku og umhverfi, og um náttúrutengda ferðamennsku. Lesa meira... |
| 31.3.2009 18:32 | Heimtur góðar á nemendum | |
|  Þrír fyrrum CELL (Center for Ecological Living and Learning) nemendur eru þessa dagana í heimsókn á Sólheimum. Þær Sara Domek og Sarah Oakes voru í fyrsta hópi háskólanema í CELL prógramminu 2007 og Ana Luizzi var í hausthópnum 2008. Lesa meira... |
|
10.3.2009 12:21 | Nýr forstöðumaður hefur verið ráðinn í Sesseljuhús | |
|  Pálín Dögg Helgadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Sesseljuhúss umhverfisseturs. Hún tekur við starfinu af Bergþóru Hlíðkvist Skúladóttur sem eftir þriggja ára starf hverfur nú til starfa hjá Umhverfisstofnun. Lesa meira... |
| 17.1.2009 18:14 | Leit að nýjum forstöðumanni | |
|  Í dag er laust til umsóknar starf Sesseljuhúss umhverfisseturs en núverandi forstöðumaður, Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir, mun brátt hverfa til starfa hjá Umhverfisstofnun. Starf forstöðumanns er fjölbreytt og spennandi og felur í sér fræðslu og kennslu í sjálfbærri þróun, fyrir innlenda sem erlenda skólahópa sem og almenning. Áhugasömum er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra Sólheima, Guðmund Ármann, í síma 4804401. Lesa meira... |
|
19.12.2008 15:44 | | Jólakveðjur frá Sesseljuhúsi |
|  Starfsfólk Sesseljuhúss óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Sjaldan hefur verið eins mikil þörf á samkennd og samstöðu á landinu okkar góða eins og um þessar mundir. Nú er þörf að standa saman og sýna vinsemd og kærleik í verki. |
| 18.12.2008 15:32 | Uppbygging Orkugarðs Sólheima | |
|  Í gær var vindmylla til raforkuframleiðslu reist á Sólheimum en slíkt hefur staðið til um nokkurt skeið. Vindmyllan er hluti af Orkugarði Sólheima sem nú er unnið að og stefnt að formlegri opnun næsta vor. Það er Rótor ehf sem flytur inn vindmylluna en rafallinn er 600W af gerðinni Ampair. Lesa meira... |
|
1.12.2008 14:33 | Viðurkenning fyrir Sesseljuhús | |
|  Sesseljuhús umhverfissetur var nýlega valið sem framlag Íslands á heimsráðsstefnu UNESCO sem haldin verður í mars 2009. Um er að ræða útnefningu íslensku UNESCO-nefndarinnar um “gott dæmi um fræðslu í sjálfbærri þróun” hér á Íslandi. Auk Sesseljuhúss var eitt annað íslenskt verkefni tilnefnt. Lesa meira... |
| 25.11.2008 14:51 | Kveðjustund | |
|  Í gær, þann 24. nóvember kvöddu CELL nemendurnir Sólheima og Ísland og héldu til síns heima í Bandaríkjunum. Nemendurnir kvöddu með trega enda hafa þau bundist samfélaginu á Sólheima sterkum vinaböndum. Sólheimabúar geta þó strax farið að láta sér hlakka til að hitta þau aftur því 3 nemendur munu snúa til baka í maí á næsta ári. Lesa meira... |
|
21.11.2008 09:24 | 8. bekkur kynnir verkefni og opnar sýningu | |
|  Sesseljuhús og Grunnskólinn Ljósaborg hafa átt gott samstarf undanfarin ár. Þetta haustið bauðst 8. bekk skólans að taka valáfanga á Sólheimum sem var í umsjón Sesseljuhúss. Í gær kynntu nemendurnir afrakstur annarinnar og var allur skólinn viðstaddur auk íbúa Sólheima. Lesa meira... |
| 31.10.2008 11:06 | Í sól og blíðu á Suðurnesjum | |
|  Jarðvarmi er ein af undirstöðum góðra lífsgæða á Íslandi. CELL hópurinn heimsótti Hitaveitu Suðurnesja í gær og fræddist um starfsemi fyrirtækisins hjá Þorgrími Stefáni Árnasyni, öryggis-, heilbrigðis-, og umhverfisstjóra. Að leiðsögn lokinni var hópnum boðið upp á ljúffengan hádegismat og í Bláa Lónið sem engan sveik, frekar en fyrri daginn. Hitaveita Suðurnesja er einn af bakhjörlum Sesseljuhúss. Lesa meira... |
|
15.10.2008 11:30 | Fræðslustarf að Sólheimum | |
|  Þann 17. október næstkomandi mun fara af stað námskeið í Sesseljuhúsi á Sólheimum sem höfðar til allra þeirra sem hafa áhuga á hvað það er að vera manneskja. Þá helgi, 17. - 19. október mun Henk-Jan Meyer leiðbeina þátttakendum um 7 ára tímabilin. Námskeiðin sem eru í heildina fjögur eru óskyld í efnistökum og því er hægt að mæta á stakar helgar, ekki er nauðsynlegt að mæta allar helgar. Frekari upplýsingar er á www.mannspeki.is eða í síma 8697673. Lesa meira... |
| 10.10.2008 11:04 | Sagan og Laxness | |
|  Í gær fór CELL hópurinn til Þingvalla þar sem Einar Á. E. Sæmundsen tók á móti hópnum og fræddi um þennan sögufræga stað. Nemendurnir eru allir búnir að læra Íslandssögu og fannst tilkomumikið að ganga um og upplifa söguna. Auk Þingvalla var farið að Gljúfrasteini og gengið um hýbýli Nóbelsskáldsins með hljóðleiðsögn í eyrunum. Sú heimsókn kom skemmtilega á óvart og hyggjast nemendurnir leggast í lestur á næstunni. Lesa meira... |
|
8.10.2008 10:35 | Vistvernd í verki á Íslandi | |
|  Um síðast liðna helgi var fróðleg námsstefna á vegum Landverndar í Sesseljuhúsi þar sem yfirskriftin var Vistvernd í verki - menntun til sjálfbærni. Þar töluðu stofnendur Vistverndar í verki í Evrópu, þau Marilyn og Alexander Mehlmann og Peter van Luttervelt, sérfræðingur í vinnustaðaráðgjöf. Margt fróðlegt kom fram í erindum og umræðum. Auk þess bauðst gestum að kanna aksturshæfni sína í aksturshermi sem notaður er við kennslu í vistakstri og að horfa á bíómynd um andlát rafmagnsbílsins. Lesa meira... |
| 30.9.2008 14:49 | Hálendið heillar | |
|  Um síðustu helgi gekk CELL hópurinn, ásamt fleirum, hinn svokallaða Laugaveg, þ.e. frá Landmannalaugum í Þórsmörk. Fresta þurfti ferðinni um viku vegna veðurs og lagt var af stað í blíðu síðasta fimmtudag. Ferðin var í alla staði vel heppnuð undir úrvalsleiðsögn Páls Ásgeirs Ásgeirssonar og Rósu Sigrúnar Jónsdóttur og heilluðust nemendur af fjölbreyttu landslagi og veðri!! Lesa meira... |
|
16.9.2008 14:45 | Frumkvöðlar á ferð | |
|  Góður hópur fundaði í Sesseljuhúsi frá 11. - 14. september s.l. en það voru stofnendur og meðlimir í Global Eco-village Network og GAIA education. Hópurinn var mjög fjölþjóðlegur og ræddi stöðu og framtíð samtakanna. Sólheimar eru meðlimir í Global Eco-village Network og eru talin vera eitt af slíkum vistþorpum í heimi. Lesa meira... |
| 4.9.2008 22:17 | Háskólanám hafið á ný í Sesseljuhúsi | |
|  Í gær kom til Sólheima hópur háskólanemenda frá Bandaríkjunum sem munu dvelja á Sólheimum næstu 3 mánuði við nám og störf. Þetta er annar hópurinn frá menntasamtökunum CELL sem kemur til að mennta sig á Sólheimum en sama nám var í boði síðastliðið haust. Námið byggist á námskeiðum, vettvangsferðum um landið og verkefnum sem unnin eru á Sólheimum. Verkefnin miða öll að því að gera umbætur í umhverfismálum á Sólheimum. Lesa meira... |
|
28.8.2008 21:43 | Samið við Primordia ráðgjöf | |
|  Í dag var skrifað undir samning á milli Sesseljuhúss umhverfisseturs og Primordia um gerð viðskiptaáætlunar fyrir Orkugarð Sólheima sem nú er unnið að. Sótt var um styrk til Impru nýsköpunarmiðstöðvar sem styrkir verkefnið. Lesa meira... |
| 28.8.2008 12:13 | Samstarf Sesseljuhúss og Grunnskólans Ljósuborgar | |
|  Í dag hófst samstarf Sesseljuhúss og Grunnskólans Ljósuborgar um kennslu fyrir 8. bekk sem mun standa yfir á 1. og 3. önn á skólaárinu sem nú er að hefjast. Á fyrri önninni munu nemendur kynnast byggðahverfinu Sólheimum og fá að heimsækja vinnustofur. Á síðari önninni verður almenn fræðsla um umhverfismál. Lesa meira... |
|
27.8.2008 22:30 | Ánægjuleg tíðindi | |
|  Nýverið var undirritaður samningur milli Landsvirkjunar og Sesseljuhúss umhverfisseturs um að Landsvirkjun gerist bakhjarl Sesseljuhúss, þ.e. einn af aðal samstarfs- og styrktaraðilum hússins. Helsta markmið samningsin er að samnýta þekkingu beggja aðila við uppbyggingu á umhverfisfræðslu fyrir skólahópa og ferðamenn. Lesa meira... |
| 18.8.2008 11:57 | Nýjungar í orkumálum | |
|  Með því að setja upp sólarsellur á um 20 þúsund ferkílómetra af Sahara væri hægt að nýta um 0,3% af þeirri sólarorku sem fellur þar og sjá Evrópu fyrir rafmagni, skv. Evrópusambandinu. Með því myndi útblástur af koltvísýringu í Evrópu minnka. Til samanburðar er Ísland um 100 þúsund ferkílómetrar. Lesa meira... |
|
15.8.2008 13:47 | Ógnvekjandi rannsóknarniðurstöður | |
|  Nýjar rannsóknir sýna að efnasambönd á heimilum og vinnustöðum skaða okkur mun meira en áður hefur verið haldið. Aukning í astma og ofnæmi er í sterku samhengi við notkun á mýkjandi efnum í innanstokksmunum sem losna/gufa upp og hafna í lungum þeirra sem nálægt eru. Lesa meira... |
| 14.8.2008 15:34 | Umhverfisnám á Sólheimum | |
|  Síðast liðið haust hófst í fyrsta skipti háskólanám á Sólheimum en það er samstarfsverkefni Sesseljuhúss og bandarísku menntasamtakanna CELL. Verkefnið tókst vel í alla staði og nú er nýr hópur á leiðinni. Lesa meira... |
|
23.7.2008 00:04 | Matur, mannlíf, menntun og músík | |
|  Næsta laugardag, 26. júlí, verður lífrænn dagur á Sólheimum en þá munu hinir góðkunnu kokkar Beggi og Pacas matreiða og selja góðgæti úr lífrænt ræktuðu hráefni í kaffihúsinu Grænu könnunni á Sólheimum frá kl. 13. Á Rauða torgi Sólheima verður kynning á lífrænt ræktuðu grænmeti og trjáplöntum auk fræðslu og kynningu á námsmöguleikum í lífrænni ræktun. Í Sesseljuhúsi verður kynning á vef Náttúrunnar, sem er vefur með umhverfisvitund. Lesa meira... |
| 1.7.2008 12:09 | Styrkir veittir úr Orkusjóði | |
|  Í dag voru veittir styrkir úr Orkusjóði og var Sesseljuhús einn af styrkhöfum, fyrir verkefnið Orkugarður Sólheima. Það var Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sem afhenti styrkina í Þjóðmenningarhúsi. Orkugarður hlaut 500.000 kr í styrk en fyrr í sumar hlaut verkefnið sömu styrkupphæð frá Orkuveitu Reykjavíkur og síðan 200.000 frá Impru nýsköpunarmiðstöð. Orkugarður Sólheima verður fræðslugarður um endurnýjanlega orkugjafa fyrir skólahópa og ferðamenn. Lesa meira... |
|
19.6.2008 16:02 | Fræðst um sjálfbæra þróun | |
|  Það var áhugasamur hópur nemenda frá SIT í Bandaríkjunum sem hlýddi á erindi um sjálfbæra þróun í Sesseljuhúsi í dag. Sólheimar er fyrsti áfangastaður hópsins sem mun dvelja á Íslandi í 7 vikur við nám við RES, Orkuskóla á Akureyri. Lesa meira... |
| 15.6.2008 11:05 | Fræðslufundur í Sesseljuhúsi | |
|  Hátt í 50 manns mættu á fræðslufund í Sesseljuhúsi í gær þegar Sigurður H. Magnússon frá Náttúrufræðistofnun Íslands leiðbeindi fólki að þekkja plöntur. Sigurður hélt stutt erindi inni í Sesseljuhúsi en síðan þrammaði hersingin af stað og skoðaði plöntur á Sólheimum í sól og blíðu. Svo skemmtilega vill til að Dagur hinna villtu plantna er í dag, 15. júní! Lesa meira... |
|
11.6.2008 10:44 | Bandarískir blaðamenn í heimsókn | |
|  Í dag heimsóttu sjö bandarískir blaðamenn Sólheima sem koma frá hinum ýmsu umhverfis- og heilsublöðum í Bandaríkjunum. Þeir höfðu áhuga á að kynnast ferðaþjónustu á Sólheimum og nýtingu jarðvarmans, þá sérstaklega við upphitun gróðurhúsanna. Sól skein í heiði og hrifust gestirnir af hugsjón Sólheima sem er að gefa hverjum einstaklingi tækifæri í sjálfbæru samfélagi. Lesa meira... |
| 11.6.2008 10:41 | Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi | |
|  Hefur þú einhvern tíma velt því fyrir þér, á göngu um náttúru Íslands, hvað blómin og jurtirnar í kringum þig heita? Nú er tækifærið til að taka fyrsta skrefið í þeirri þekkingarleit því næsta laugardag ætlar Sigurður H. Magnússson, hjá Náttúrufræðistofnun Íslands að fræða gesti í Sesseljuhúsi um blóm og jurtir. Sigurður mun byrja á stuttu fræðsluerindi innandyra en síðan verður farið út og spáð í náttúruna. Ókeypis aðgangur! Lesa meira... |
|
7.6.2008 22:50 | Menningarveisla Sólheima 2008 hafin | |
|  Menningarveisla Sólheima 2008 hófst formlega í dag og mun hún standa yfir í allt sumar. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og má þar nefna tónleika alla laugardaga, listsýningar, leiðsögn um trjásafn, kaffihús og verslun/gallerí. Sesseljuhús tekur þátt í Menningarveislunni og býður upp á fjölbreyttan fróðleik sem tengist umhverfismálum á mismunandi hátt, sjá hér fyrir neðan. Lesa meira... |
| 2.6.2008 11:50 | Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi | |
|  Náttúran skartaði sínu fegursta á Sólheimum þegar góður hópur gesta naut leiðsagnar Jóns Eiríkssonar jarðfræðings um hvernig lesa á í landslagið. Jón flutti áhugavert erindi innandyra um hvað hefur mótað Ísland í gegnum tíðina og sýndi fjölmargar ljósmyndir. Auk þess fjallaði hann jarðskjálfta enda mikill áhugi á því eftir skjálftann síðasta fimmtudag. Þá var farið út og á góðum útsýnisstað fór Jón yfir fjallahringinn og útskýrði hvernig hann var til. Þetta var afar áhugaverð fræðslustund. Lesa meira... |
|
26.5.2008 15:11 | Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi | |
|  Langar þig að vita af hverju landslagið er eins og það er? Af hverju er sums staðar undirlendi og annars staðar þröngir firðir? Þá er upplagt tækifæri að líta við í Sesseljuhúsi næsta laugardag en þá ætlar Jón Eiríksson, jarðfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskólans, að veita gestum innsýn í það sem jarðfræðingurinn sér í landslaginu. Ókeypis aðgangur! Lesa meira... |
| 21.5.2008 15:46 | Bandarískur háskóli á ferð | |
|  Einn af föstum liðum í starfi Sesseljuhúss er að taka á móti erlendum nemendum og fræða um sjálfbæra þróun þar sem áherlsa er lögð á Sólheima og Ísland. Sterling háskóli í Bandaríkjunum hefur komið árlega síðan árið 2000 og í dag var hin árlega heimsókn þeirra til Sólheima. Lesa meira... |
|
17.5.2008 16:55 | Náttúruskoðun í Sesseljuhúsi | |
|  Góð mæting var í fuglaskoðun í Sesseljuhúsi í dag eða rúmlega 40 manns. Jóhann Óli Hilmarsson formaður Fuglaverndunarfélags Íslands flutti fræðsluerindi þar sem áhersla var lögð á fugla á Suðurlandi, vestan Þjórsár. Hann kynnti einnig Fuglavefinn, stórskemmtilegan og gagnvirkan vef, og félagið sem hann veitir formennsku. Að loknu erindi var farið út og labbað um nágrennið og fuglar skoðaðir. Góður rómur var gerður að þessari fræðslustund og víst að margir hafa áhuga á að þekkja fugla. Lesa meira... |
| 14.5.2008 11:40 | Náttúran skoðuð | |
|  Nú er sumarið á næsta leiti og fuglalífið fjörugt. Af því tilefni boðar Sesseljuhús, í samstarfi við Fuglavernd, til fuglaskoðunar laugardaginn 17. maí kl. 13. Jóhann Óli Hilmarsson mun flytja stutt erindi í Sesseljuhúsi en síðan verður farið út að skoða fugla. Aðgangur er ókeypis! Lesa meira... |
|
8.5.2008 10:11 | Danir huga að sínum byggingum | |
|  Í nýrri skýrslu frá Danska tækniháskólanum (DTU) kemur fram að danska ríkið gæti sparað umtalsverða orku og fjármuni með því að bæta einangrun í byggingum sínum. Þar hefur verið reiknað út að ríkið spari 3,8 milljarða danskra króna í lýsingu og upphitun með endurbótum upp á 2,9 milljarða á hverju ári fram til 2020. Lesa meira... |
| 6.5.2008 09:48 | Erlendur sjálfboðaliði hjálpar til | |
|  Þann 2. maí hóf Nicole Cadek störf í Sesseljuhúsi en hún dvelur nú sem sjálfboðaliði á Sólheimum. Nicole mun starfa í Sesseljuhúsi fyrir hádegi fram í ágústlok og vinna með forstöðumanni að undirbúningi Orkugarðs og að umhverfisstjórnunarkerfi Sólheima. Lesa meira... |
|
2.5.2008 17:26 | Margt smátt gerir eitt STÓRT | |
|  Ökumenn hafa lengi vitað að þeir geta sparað bensín með því að aka hægar á þjóðvegunum. Hækkandi eldsneytisverð hefur nú orðið til þess að bandarísk flugfélög láta farþegaþotur sínar fljúga hægar í sparnaðarskyni. En það hljómar lyginni líkast að eitt flugfélag geti sparað rúma þrjá milljarða íslenskra króna með því að lengja flugtíma hverrar vélar í flota sínum um 1-3 mínútur! Þá á alveg eftir að reikna út hve miklu minna flotinn mengar. Lesa meira... |
| 30.4.2008 23:50 | Spor í rétta átt | |
|  Íslandspóstur hefur tekið ákvörðun um að gefa neytendum kost á því á ný að panta lúgumiða sem afþakkar allan fjölpóst. Íslandspóstur dreifir um 12% af magni fjölpósts, sem kemur inn um lúgur landsmanna, ef fríblöð eru talin með. Bréfberar Íslandspósts munu við dreifingu fjölpósts virða þær óskir, sem lúgumiðinn ber með sér, en geta eðlilega ekki borið ábyrgð á öðrum dreifendum, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Lesa meira... |
|
30.4.2008 13:51 | Fréttir fyrir neytendur frá Noregi | |
|  Í Noregi starfa Regnskógasamtök sem árlega gefa út bækling sem inniheldur fróðleik til neytenda um hvaða garðhúsgögn eru framleidd með uppruna timburs í huga. Árlega er gerð úttekt á húsgögnum og neytendum ráðlagt að sniðganga ákveðin húsgögn ef kemur í ljós að efniviður þeirra kemur úr regnskógi sem nýttur er á ósjálfbæran hátt, þ.e. meira höggvið en plantað. Í úttekt fyrir 2008 fær stór verslunarkeðja falleinkunn. Lesa meira... |
| 29.4.2008 14:37 | Heilsunámskeið í Sesseljuhúsi dagana 30. apríl – 4. maí. | |
|  Hver kannast ekki við það að setja sér háleit markmið á hverju ári um að hefja betra líf ... bráðum(!) og standa svo frammi fyrir því jafn oft að markmiðunum hefur ekki verið náð. Hvað hefur þú oft tekið þá ákvörðun að henda öllum óhollum matvælum úr eldhúsinu þínu og fylla skápana af hollustu? Lesa meira... |
|
29.4.2008 12:03 | Japanskir fréttamenn á ferð | |
|  Í dag og í gær hafa japanskir fréttamenn fyrir blaðið Sotokoto, environmental magazine, dvalið á Sólheimum og viðað að sér efni til umfjöllunar um Ísland. Blaðið er umhverfis- og hönnunarblað og sýndu blaðamennirnir Sesseljuhúsi mikinn áhuga. Lesa meira... |
| 25.4.2008 09:45 | Til hamingju með daginn | |
|  Í dag, 25. apríl, er Dagur umhverfisins og að þessu sinni er hann helgaður vistvænum lífsstíl. Af því tilefni er efnt til ýmissa viðburða. Þar má helst nefna opnun sýningar um vistvænan lífsstíl í Perlunni og málþing á vegum Félags íslenskra umhverfisfræðinga sem nefnist: Er svifrykið að kæfa okkur? Lesa meira... |
|
23.4.2008 13:31 | Fundur í Sesseljuhúsi | |
|  Annað kvöld, mánudaginn 21. apríl, munu Náttúruverndarsamtök Suðurlands halda aðalfund sinn í Sesseljuhúsi. Tvö erindi verða flutt og eru félagsmenn, bændur, aðrir Sunnlendingar og allir velunnarar eru hvattir til að fjölmenna og fræðast um starfsemi samtakanna og um málefni fundarins, lífræna þróun í framleiðslu og neyslu. Nýir félagar eru sérstaklega velkomnir. Lesa meira... |
| 21.4.2008 13:01 | Opinn fundur | |
|  Síðasta föstudag, 18. apríl, var opinn fundur um sjálfbærar byggingar haldið á vegum Stofnunar Sæmundar fróða og Umhverfisráðuneytisins. Margir mættu og er augljóst að mikill áhugi er á málefninu. Það sama var upp á teningnum þegar Sesseljuhús hélt ráðstefnu um sjálfbærar byggingar fyrir einu og hálfu ári. Sesseljuhús er þekktasta sjálfbæra byggingin á Íslandi. Lesa meira... |
|
17.4.2008 13:20 | Heimsókn | |
|  Í dag kom í heimsókn hópur frá Svíþjóð frá fyrirtækinu Tyréns AB í Kristianstad. Þau eru í heimsókn hjá Landsvirkjun og fannst tilvalið að heimsækja Sólheima og fræðast um starfsemina hér. Haldin var sögukynning með áherlsu á umhverfismálin og síðan gengið um þorpið. Lesa meira... |
| 16.4.2008 13:14 | Fjölmiðlaheimsókn | Innlit-útlit á ferð á Sólheimum |
|  Í dag voru góðir gestir á Sólheimum en það var starfsfólk Innlits útlits, þáttar sem sýndur er á Skjá 1. Þau skoðuðu ýmislegt á Sólheimum og þar á meðal Sesseljuhús. Það vakti athygli þeirra að Sesseljuhús er skjálfbær bygging og sér á báti, bæði á Íslandi sem og erlendis. Þátturinn verður sýndur annaðhvort næsta eða þarnæsta þriðjudag, þ.e. 22. eða 29. apríl. |
|
16.4.2008 10:15 | Nýjar tölur um hver mengar mest í heimi | |
| 
Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem unnin var við Háskóla Kaliforníu sýna að Kína er orðinn orðinn mesti mengunarvaldur í heimi. Þar til nú hefur því almennt verið trúað að Bandaríkin losuðu mest af gróðurhúsalofttegundum í heimi. Nú er hins vegar talið að Kína hafi farið fram úr Bandaríkjun á árabilinu 2006-2007 og því er spáð að losun þeirr á næstu árum muni vinna upp minnkun losunar þróaðri ríkja. Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins í dag. Lesa meira... |
| 28.3.2008 14:42 | Breytingar í nánd í Danmörku | |
|  Fyrirtækið Dong Energy reiknar með að um hálf milljón rafmagnsbílar muni vera í umferð í Danmörku fyrir 2020. Bílarnir komast 150 kílómetra á einni hleðslu og kosta minna en 100.000 danskar krónur. Sala á þeim mun hefjast eftir 2 ár. Lesa meira... |
|
18.3.2008 09:50 | | |
|  Um 50 manns heimsóttu Sesseljuhús síðastliðið laugardagskvöld til að skoða stjörnurnar. Það voru félagar úr Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness sem leiddu hópinn við góðar undirtektir. Vígðir voru tveir nýir stjörnukíkjar sem nýlega var fjárfest í á Sólheimum og má áætla út frá góðri mætingu og almennri ánægju að stjörnuskoðun verði að föstum lið í Sesseljuhúsi á næstunni. Lesa meira... |
| 14.3.2008 10:15 | Laugardagskvöldið 15. mars | |
|  Annað kvöld munu félagar úr Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness stýra stjörnuskoðun í Sesseljuhúsi. Stjörnuskoðunin hefst með fræðsluerindi innandyra kl. 21 en síðan munu gestir fara út og skoða stjörnurnar með hjálp stjörnukíkja. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Lesa meira... |
|
12.3.2008 10:52 | Vistvernd í verki á Sólheimum | |
| 
Tveir hópar á Sólheimum taka nú þátt í verkefninu Vistvernd í verki sem er alþjóðlegt verkefni í umsjón Landverndar. Tekin eru fyrir ákveðin málefni og í gær var "orka" á dagskrá. Í því tilefni heimsótti annar hópurinn, Vinahópurinn, Írafossvirkjun þar sem fræðst var um hvernig rafmagn er framleitt með vatnsorku. Á eftir var farið á kaffihús á Selfoss og veðurblíðunnar notið. Lesa meira... |
| 11.3.2008 08:18 | Staða lífræns landbúnaðar á Íslandi | |
|  Í dag er hlutfall framleiðslu íslensks landbúnaðar sem er lífrænt vottaður innan við 1% en samkvæmft þingsályktunartillögu er markmiðið að hlutfallið verði 15% árið 2012. Að sögn Haraldar Benediktssonar, formanns Bændasamtakanna er þetta markmið óraunhæft eins og kemur fram á mbl.is í dag. Lesa meira... |
|
7.3.2008 11:56 | Fróðleg tölfræðisíða | |
|  Hve margir eru jarðarbúar akkúrat núna? Hve mikið rusl er að safnast fyrir á götum Napólíborgar þessa stundina? Hve hratt eru skógar heimsins að eyðast? Svarið við þessum spurningum og mörgum öðrum er hægt að nálgast á skemmtilegri heimasíðu um tölfræði heimsins. Lesa meira... |
| 28.2.2008 11:07 | Vistvernd í verki | |
|  Í gær var tekið fyrir þemað "Sorp" hjá Vinahópnum en það er annar hópurinn sem nú tekur þátt í Vistvernd í verki á Sólheimum. Rætt var um hvað sorp væri og hvort við ættum kannski frekar að tala um afganga og umgangast þá sem auðlind því í endurvinnslu verða til nýir hlutir sem nýtast. Til marks um það þá var sköpunargleðinni gefinn laus taumur og hafist handa við að smíða kastala úr "afgöngum" sem hópurinn hafði safnað vikuna á undan. Lesa meira... |
|
15.2.2008 20:17 | Góðar fréttir frá Noregi | |
|  Margir hafa býsnast yfir því óhemju mikla magni af alls kyns fjölpósti sem smýgur inn um lúguna án þess að nokkur hafi beðið um hann. Þó svo margir reyni að afþakka þá ber það ekki alltaf árangur. Nú hafa bæjaryfirvöld í Bergen í Noregi gengið skrefinu lengra og bannað að slíkur póstur sé settur inn um lúguna hjá öðru fólki en því sem hefur óskað þess sérstaklega. Þeir sem vilja auglýsingar og fríblöð í pósti þurfa því að merkja póstkassa sína með merkinu „já takk“ að því er fram kemur á heimasíðu Grønn hverdag í Noregi og í Morgunblaðinu í dag. Lesa meira... |
| 15.2.2008 19:53 | Hertar reglur erlendis | |
|  Á meðan sala á stórum jeppum blómstrar á Íslandi eins og greint var frá í fréttum nýlega þá er stemningin öðruvísi á Englandi. Nú verða ökumenn þeirra bíla sem menga mest að greiða 25 pund, um 3.300 kr. ísl., í hvert sinn sem þeir koma inn á mestu umferðarsvæðin í London. Mengunarminnstu bílarnir sleppa hins vegar alveg við gjaldtöku. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Lesa meira... |
|
7.2.2008 11:31 | Bara það besta fyrir börnin? | |
|  Hormónatruflandi efni (þalöt) í barnakremum, barnapúðri og barnasjampói eiga greiðan aðgang inn í líkama barna við notkun og mælast strax í þvagi þeirra. Þetta kemur fram í amerískri og danskri rannsókn. Varað er við því að bera krem sem innihalda þalöt á börn og ófrískum konum bent á að forðast notkun slíkra krema. Þalöt geta haft áhrif á þroska og heilsu ófæddra sem og nýfæddra barna. Þau eru notuð til dæmis til að gera plastefni mjúk og sveigjanleg og finnast í mörgum vörutegundum eins og leikföngum og sjúkrahúsavörum. Lesa meira... |
| 4.2.2008 17:14 | Nemendaheimsókn í Sesseljuhúsi | |
|  Bjart og fallegt veður tók á móti nemendahópi frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla sem heimsótti Sesseljuhús í dag. Þetta voru nemendur í valáfanga um umhverfismál með kennara sínum, Heiðu Björk Sturludóttur, og ánægjulegt að sjá hve hópurinn var stór, um 20 manns. Hópurinn byrjaði heimsóknina á að hlusta á erindi um sjálfbæra þróun og en síðan var gengið um Sesseljuhús og Sólheima. Lesa meira... |
|
24.1.2008 22:55 | Kynningarfundur Landverndar | |
|  Það var góð mæting á kynningarfund um Vistvernd í verki sem haldinn var í Sesseljuhúsi í gærkvöldi. Það voru aðilar frá Landvernd, sem sér um þetta alþjóðlega verkefni á Íslandi, sem kynntu verkefnið fyrir íbúum Sólheima. Góður rómur var gerður að kynningunni og í kjölfarið skráðu þeir sig sem áhuga höfðu á að stofna visthóp og fara í gegnum þetta verkefni. Lesa meira... |
| 18.1.2008 11:52 | Umhverfisfræðsla meðal Sólheimabúa | |
|  Í næstu viku hefst á Sólheimum verkefnið Vistvernd í verki en það er alþjóðlegt umhverfisverkefni sem Landvernd stýrir hér á landi. Markmið verkefnisins er að styðja og hvetja fólk til að taka upp vistvænni lífsstíl skref fyrir skref á þeim hraða sem hver velur sér. Lesa meira... |
|
18.1.2008 11:14 | Jákvæð teikn á lofti | |
|  Í Bílablaði Morgunblaðsins í dag eru góðar fréttir frá bílaiðnaðinum. Sagt er frá bílasýningunni í Detroit, sem hefst formlega á morgun, en þar munu sparneytnar vélar og vélar sem ganga fyrir visthæfu eldsneyti verða áberandi. Þetta er eitthvað sem við Íslendingar ættum að fylgjast mjög vel með því bílafloti okkar og fiskiskip valda stórum hluta af útblástri gróðurhúsalofttegunda hér á landi. Lesa meira... |
| 17.1.2008 13:57 | Gagnrýni á framleiðslu lífetanóls | |
|  Bandarísk umhverfissamtökin Earth Policy Institute hafa komist að þeirri niðursöðu að þriðjungur af maísframleiðslu landsins fari nú til framleiðslu á lífetanóli. Rúmlega 250 kíló af maís þarf til að framleiða lífeldsneyti til að fylla tankinn á amerísku fjórhjólabílunum (SUV, Sport Utility Vehicle). Lesa meira... |
|
17.1.2008 09:31 | Auknar kröfur um endurvinnslu gamalla bíla | |
|  Á neyslufylleríi Íslendinga síðustu ár hefur innflutningur á nýjum bílum aukist mikið. Auk þess hefur aldur bíla sem skilað er til úrvinnslu lækkað með hverju ári. Nú hefur Evrópusambandið aukið kröfur til bílaframleiðenda um að hægt sé að endurvinna gamla bíla og innan fárra ára eiga 95% bíla að vera endurvinnanleg. Um 8.000 úrsérgengnum ökutækjum var skilað til úrvinnslu hér á landi á síðasta ári eða nærri fjórum bílum á dag! Lesa meira... |
| 16.1.2008 17:10 | Framþróun í eldsneytismálum | |
|  Stöðugt heyrast fréttir af nýjum möguleikum í framleiðslu á eldsneyti. Nú hefur bandaríska fyrirtækið Coskata kynnt nýja aðferð til framleiðslu á lífeldsneyti sem vakið hefur athygli. Framleiðsluferlið kostar minna en 17 krónur per líter og krefst engra ensíma, efna eða forvinnu á lífmassanum og gerist við lágan þrýsting og hitastig. Lesa meira... |
|
12.1.2008 13:28 | Fræðst um sjálfbæra þróun | |
|  Það var fámennt en góðmennt í hópnum frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla sem heimsótti Sesseljuhús í gær. Það voru nemendur í verklegum framhaldsáfanga í umhverfisfræðum ásamt kennara sínum, Heiðu Björk Sturludóttur. Í þessum áfanga er farið í vettvangsferðir en auk þess sitja nemendurnir í umhverfisráði skólans. Lesa meira... |
| 9.1.2008 09:22 | Fréttir af pappírsflóðinu... | |
|  Magn fjölpósts af ýmsu tagi hér á landi hefur aukist um 76% frá 2003-2007 samkvæmt upplýsingum frá umhverfisráðuneytinu. Nú hefur Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra skipað nefnd sem skila á tillögum um aðgerðir til að minnka úrgang og auka endurvinnslu á dagblöðum, tímaritum og öðrum óumbeðnum prentpappír. Lesa meira... |
|
4.1.2008 09:41 | Bandaríkjamenn hreinsa skólpvatn til drykkjar | |
|  Þrátt fyrir að Íslendingar á suðvesturhorni landsins séu orðnir þreyttir á rigningu eftir mjög blautt haust þá er vatnsskortur vaxandi vandamál víða um heim, meðal annars í sunnan- og vestanverðum Bandaríkjunum. Raunar hefur lengi stefnt í algert óefni á þessum slóðum vegna fólksfjölgunar og gífurlegrar vatnsþarfar en nú hefur eitt sveitarfélagið snúið vörn í sókn eins og kemur fram á mbl.is í dag. Lesa meira... |
| 11.12.2007 10:35 | Friðarverðlaun Nóbels afhent | |
|  Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, hvatti mannkynið til að taka höndum saman í baráttunni gegn loftslagsbreytingum er hann tók við friðarverðlaunum Nóbels í Ósló í gærkvöldi. „Án þess að gera okkur grein fyrir því höfum við hafið hernað gegn sjálfri jörðinni,” sagði hann. Þetta kom fram á mbl.is í dag. Lesa meira... |
|
4.12.2007 21:13 | Hinar ýmsu afleiðingar hjónaskilnaða | |
|  Þeir sem standa í hjónaskilnaði hafa líklega nægar áhyggjur fyrir. Þeir verða þó að sætta sig við það að skilnaðurinn hefur ekki aðeins áhrif á þá sjálfa og þá sem næst þeim standa heldur einnig á umhverfið, hjónaskilnaðir valda nefnilega auknum gróðurhúsaáhrifum. Sagt er frá þessu á mbl.is í dag og fréttin kemur upprunalega úr tímaritinu New Scientist. Lesa meira... |
| 28.11.2007 08:24 | Samstarf Sesseljuhúss og Grunnskólans Ljósuborgar | |
|  Í gær opnaði sýningin Náttúran og orkan í Sesseljuhúsi en það er samstarfsverkefni Sesseljuhúss og Grunnskólans Ljósuborgar. Opnunin hófst kl. 14 og auk nemenda og kennara var góð mæting hjá fjölskyldum nemenda. Athöfnin hófst með ávarpi Bergþóru Hlíðkvist Skúladóttur, forstöðumanns Sesseljuhúss og Hilmars Björgvinssonar skólastjóra. Síðan komu nemendur upp og sögðu frá verkefnum sínum á sýningunni og að lokum lék nemandi skólans, Sveinbjörn Jóhannesson, á klarinett. Þá var sýningin formlega opnuð. Lesa meira... |
|
26.11.2007 20:13 | Opnun jólasýningar | |
|  Á morgun, þriðjudaginn 27. nóvember, opnar sýningin Náttúran og orkan í Sesseljuhúsi í samstarfi við Grunnskólann Ljósaborg. Á sýningunni verða sýnd verk nemenda sem hafa verið unnin þessa önn sem nú er senn á enda en þemað hefur einmitt verið umhverfismál. Bæði nemendur og kennarar hafa unnið vel að sýningunni og er útkoman mjög glæsileg. Sýningin opnar kl. 14 og verður opin alla daga frá 13-17 fram að jólum og eitthvað fram í janúar. Lesa meira... |
| 24.11.2007 21:19 | CELL nemendur kynna verkefni sín | |
|  Í gær kynntu CELL nemendur niðurstöður verkefna sinna sem þau hafa unnið að á Sólheimum undanfarnar vikur. Öll verkefnin miða að því að koma með tillögur að umbótum í umhverfismálum á Sólheimum og hjálpa til við nálgast það markmið Sólheima að vera sjálfbært byggðahverfi. Verkefnin voru níu talsins og má með sanni segja að niðurstöður þeirra hafi farið fram úr björtustu vonum heimamanna. Lesa meira... |
|
22.11.2007 11:23 | Heimsókn nemenda úr Grunnskólanum Ljósaborg | |
|  Grunnskólinn Ljósaborg leggur áherslu á umhverfismennt og voru nemendur og kennarar skólans gestir í Sesseljuhúsi í gær. Gengið var um sýninguna "Hrein orka - betri heimur" þar sem forstöðumaður Sesseljuhúss spjallaði við nemendur og sagði þeim frá endurnýjanlegum orkugjöfum Jarðar. Nemendur voru duglegir að spyrja og sýndu efninu mikinn áhuga. Eftir að hafa skoðað sýninguna var horft á stutta fræðslumynd um vetni og síðan farið í heimsókn til frú Jarðgerðar. Lesa meira... |
| 14.11.2007 19:03 | Lokahnykkur á háskólanámið á Sólheimum | |
|  Mikilvægur hluti háskólanámsins sem nú fer fram í Sesseljuhús og á Sólheimum er verklegur eða "Service learning". Öll miða verkefnin að því að gera umbætur í umhverfismálum á Sólheimum. Nú hafa nemendur unnið að verkefnunum í sjö vikur en verkefnin eru 9 að tölu og mjög fjölbreytt. Föstudaginn 23. nóvember munu nemendur kynna niðurstöður sínar en tveimur dögum síðar lýkur dvöl þeirra hér á landi. Hér fyrir neðan er dagskrá kynningardagsins. Lesa meira... |
|
14.11.2007 10:30 | Síðasta vettvangsferð CELLaranna | |
|  Í gær fóru háskólanemendurnir á Sólheimum í síðustu vettvangsferðina sína en 3ja mánaða dvöl þeirra lýkur 25. nóvember. Dagurinn var fróðlegur og skemmtilegur. Fyrir hádegi var farið í Búrfellsstöð Landsvirkjunar þar sem Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar tók á móti okkur. Hann flutti mjög fróðlegt erindi um orkumál á Íslandi með áherslu á vatnsorku þar sem bæði Kárahnjúkavirkjun og fyrirhugaðar virkjanir í neðri hluta Þjórsár báru á góma. Lesa meira... |
| 10.11.2007 10:03 | CELLarar á ferðinni | |
|  Í vettvangsferð CELL-hópsins á fimmtudaginn var tvennskonar þema: Fyrir hádegi var Umhverfis- og auðlindadeild Háskóla Íslands heimsótt og eftir hádegi var þemað íslensk list. Það voru forsvarsmenn nemendafélags Umhverfis- og auðlindadeildar, þau Dagný Arnarsdóttir og Ólafur Ögmundarsson, sem tóku á móti okkur. Þau kynntu námið og verkefni nemenda svo vel að nú eru nokkrir CELL-arar mjög heitir fyrir því að sækja um þetta meistarnám! Eftir hádegið var skipt um gír og farið í Listasafn Reykjavíkur. Lesa meira... |
|
9.11.2007 11:23 | Hláturinn lengir lífið | |
|  Nýlega bárust fréttir frá Bretlandi að viðamikil rannsókn hefði leitt í ljós að lífrænt ræktuð matvæli væru hollari en þau sem unnin væru á hefðbundinn hátt. Það er ánægjuefni. Miklir hagsmunir eru í húfi á báða bóga og ekkert skrýtið að einhver ágreiningur kvikni á milli aðila. Það er þó alltaf skemmtilegt þegar fólk notar húmor í baráttu sinni eins og eftirfarandi myndband sýnir:
Lesa meira... |
| 6.11.2007 12:04 | Umhverfisleiðsögn | |
|  Fyrirspurnir einstaklinga og hópa um starfsemi Sesseljuhúss og umhverfisstarfið á Sólheimum almennt er sífellt að aukast. Reglulega berast fyrirspurnir frá einstaklingum erlendis sem vilja koma til Sólheima og vinna að umhverfismálum í sjálfboðavinnu í skemmri eða lengri tíma. Í dag kom gestur frá Tékklandi en hann heitir Pik og er kennari í umhverfisfræðum í sínu heimalandi. Lesa meira... |
|
3.11.2007 10:12 | Umhverfisdagur samtaka farfuglaheimila | |
|  Í gær fundaði góður hópur í Sesseljuhúsi en það voru Farfuglar eða Hostelling International - Iceland. Þessi samtök farfuglaheimila á Íslandi eru til fyrirmyndar þegar kemur að umhverfismálum. Þau vinna eftir ákveðinni umhverfisstefnu og eru frumkvöðlar í umhverfisstarfi fyrirtækja hér á Íslandi. Dagskrá dagsins var metnaðarfull og voru flutt fræðsluerindi um umhverfismál þar sem fjörlegar umræður fylgdu í kjölfarið. Fundarmenn sýndu umhverfisstarfi Sólheima mikinn áhuga og flutti forstöðumaður Sesseljuhúss umhverfisseturs erindi þar sem farið var yfir starfsemi hússins og starf Sólheima í heild þegar kemur að umhverfismálum. Lesa meira... |
| 30.10.2007 13:06 | Tveggja daga ferð til Eyja | |
|  Það hefur gengið brösuglega að komast í tveggja daga vettvangsferð til Vestmannaeyja með CELL nemendurna en tvisvar hefur þurft að fresta ferð vegna veðurs. En allt er þegar þrennt er og flaug hópurinn út á mánudagsmorgun og sigldi til baka með Herjólfi á þriðjudag. Í Eyjum var farið í heimsókn í Rannsókna- og fræðasetur Vestmannaeyja og hlýtt á erindi um jarðsögu Vestmannaeyja og fjarkennslu og endurmenntun. Þá var farið í Fiska- og náttúrugripasafnið þar sem sérfræðingar sátu fyrir svörum við góðar undirtektir. Farið var víða um Eyjar þrátt fyrir frekar blautt veður. Lesa meira... |
|
26.10.2007 11:48 | Borgardagur hjá CELLurum | |
|  Í dag var borgardagur hjá CELL nemendunum - bæði til fróðleiks og afslöppunar. Byrjað var á að fara í Perluna þar sem útsýnið var rómað og kíkt á hina bráðskemmtilegu sýningu Sögusafnsins sem staðsett er í einum tankinum. Þá var keyrt um miðbæ Reykjavíkur og brá forstöðumaður Sesseljuhúss sér í gervi leiðsögumanns um stund. Eftir hádegi var frjáls tími og valdi meirihluti hópsins að spóka sig í miðbænum í blíðunni. Nokkrir drifu sig í fjallgöngu og klifu Esjuna. Lesa meira... |
| 20.10.2007 21:45 | Frábærar móttökur í Hitaveitu Suðurnesja | |
|  Í gær átti CELL hópurinn sérstaklega góðan dag þegar fræðst var um jarðvarma í heimsókn í Hitaveitu Suðurnesja (HS). HS er einn af styrktaraðilum Sesseljuhúss og fengu nemendur höfðinglegar móttökur. Það var Þorgrímur Stefán Árnason, öryggis-, heilbrigðis- og umhverfisstjóri sem tók á móti hópnum. Hann fór með okkur um hin risavöxnu mannvirki Hitaveitunnar og útskýrði skilmerkilega hvernig jarðhitinn er nýttur. Auk alls fróðleiksins var boðið upp á ljúffengan hádegisverð á veitingastað Bláa Lónsins sem og frítt í Lónið sjálft. Lesa meira... |
|
20.10.2007 21:34 | VA arkitektar hljóta Íslensku byggingarlistarverðlaunin | |
|  Íslensku byggingarlistarverðlaunin 2007 komu í dag í hlut VA arkitekta fyrir Lækningalind, Bláa lóninu. Geir H. Haarde forsætisráðherra afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum. Lækningalind Bláa lónsins er sjálfstæð viðbót við Heilsulind Bláa lónsins og rís upp úr úfnu mosavöxnu hrauni. Við hönnun hússins var sérstaklega tekið tillit til umhverfisins og skýrar reglur voru settar til að lágmarka allt rask í kringum húsið. Lesa meira... |
| 18.10.2007 22:16 | Gestafyrirlesari í Sesseljuhúsi | |
|  Góður gestur var í Sesseljuhúsi í dag en það var Cornelius Art Meyles sem fræddi nemendur um allt er varðar sorpmál á Íslandi. Cornelius er sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og íbúi á Sólheimum þar að auki. Í erindi sínu fór hann vítt og breitt um þetta mikilvæga málefni samtímans og sýndi nemendum hve gífurlegar framfarir hafa átt sér stað hér á landi síðustu 30 ár. Málefni Íslands voru sett í samhengi við sorpmálin í Evrópu og hvernig Ísland þarf að mæta kröfum Evrópusambandsins í þessum málum. Lesa meira... |
|
9.10.2007 21:36 | Fræðst um umhverfismál í Sesseljuhúsi | Lionsmenn fræðast um sjálfbæra þróun |
|  Sesseljuhús fékk góða gesti í gærkvöldi en þá mættu félagar úr tveimur Lionsklúbbum og fræddust um starfsemi hússins og sjálfbæra þróun almennt. Þetta voru Lionsklúbbarnir Geysir og Skjaldbreiður úr Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi. Fluttur var fyrirlestur þar sem fjallað var um sjálfbæra þróun, sjálfbærar byggingar og starfsemi Sesseljuhúss og eftir léttar veitingar var gengið um sýninguna Hrein orka - betri heimur. Góðar umræður mynduðust og mjög ánægjulegt að félagasamtök sýni umhverfismálum áhuga og sýni frumkvæði að því að sækjast eftir frekari fræðslu á því sviði. |
| 5.10.2007 17:22 | Orkustofnun og Umhverfisráðuneyti heimsótt | |
|  Orkumál voru í algleymingi í heimsókn CELL hópsins á Orkustofnun í morgun og eftir hádegi var Umhverfisráðuneytið heimsótt. Á báðum stöðum voru móttökur til fyrirmyndar og nemendur mjög ánægðir í lok dags. Á Orkustofnun voru flutt fimm erindi sem spönnuðu orkumál landsins og vörpuðu þau ljósi á þær skiptu skoðanir sem eru um þessi mál hér á landi. Lesa meira... |
|
2.10.2007 18:34 | Fræðsluerindi í Sesseljuhúsi | |
|  Í dag kom Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur í heimsókn í Sesseljuhús og flutti erindi um jarðfræði Íslands. Áhorfendur voru bandarísku háskólanemendurnir sem nú stunda nám í umhverfisfræðum á Sólheimum. Erindið vakti mikla lukku meðal nemenda sem allir hafa fallið fyrir mikilfenglegri náttúru landsins á þeim fjóru vikum sem þau hafa dvalið hér. Ari Trausti fór vítt og breitt um efnið og gaf nemendum góða yfirsýn en það var einmitt það sem nemendurnir sóttust eftir. Lesa meira... |
| 28.9.2007 18:15 | CELL hópurinn á ferð | |
|  Í dag fór CELL hópurinn í vettvangsferð í Gunnarsholt þar sem þau fræddust um þá merku starfsemi sem þar á sér stað. Í ár er einmitt 100 ár frá stofnun þessarar stofnunar. Móttökur voru til fyrirmyndar og var hlustað á erindi sérfræðinga stofnunarinnar og síðan gengið um svæðið og Gunnlaugsskógur skoðaður. Frá Gunnarsholti var brunað að Leirubakka þar sem Heklusetrið var heimsótt og síðan keyrt að Skjólkvíum þaðan sem Hekla var klifin. Lesa meira... |
|
23.9.2007 00:13 | Vettvangferð á Vesturland | |
|  Síðasta föstudag fóru CELL nemendur í tveggja daga vettvangsferð um Vesturland. Fyrst var farið í heimsókn í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri þar sem gengið var um skólasvæðið og fræðst um starfsemi skólans. Ullarselið á staðnum vakti lukku en þar freistuðu fallegar ullarvörur nemendur upp úr skónum. Í Reykholti var fræðst um Snorra Sturluson sem talinn er hafa skrifað Egilssögu og á leið í Fljótstungu, þar sem gista skyldi, skartaði Langjökull sínu fegursta svo nemendur stóðu agndofa af aðdáun. Hraunfossar og barnafoss vöktu líka aðdáun. Lesa meira... |
| 20.9.2007 00:32 | Ný hlið á Egilssögu | |
|  Í dag, síðasta dag námskeiðsins Icelandic, History and Culture, kom leynigestur í heimsókn! Það reyndist vera Margrét Hallmundsdóttir fornleifafræðingur sem fræddi nemendur um fornleifauppgröft að Hrísbrú í Mosfellsdal en þar hefur ýmislegt fundist sem er í samræmi við frásagnir í Egilssögu. Erindið var mjög athyglisvert og sýndi nemendum hvernig Íslendingasögurnar skapa enn og aftur efnivið í rannsóknir nútímans og hvernig þær lifa góðu lífi, löngu eftir að þær voru skrifaðar. Lesa meira... |
|
19.9.2007 23:40 | CELL nemendur læra um land og þjóð | |
|  Fyrstu tvær vikur háskólanámsins hér á Sólheimum kafa nemendur í sögu og menningu Íslands, auk íslenskukennslu, á námskeiði sem kallast Icelandic, history and Culture. Þar sem Íslendingasögurnar eru stór þáttur í menningararfi þjóðarinnar voru nemendur látnir lesa Egilssögu með dyggri hjálp kennara. Til að glæða námsefnið lífi var bæði nemendahópnum og Eglu skipt í 4 hluta og fékk hver hópur það verkefni að gera útdrátt úr sínum hluta og setja hann í leikrænan búning. Má með sanni segja að nemendur hafi farið á kostum og skemmt sér konunglega. Lesa meira... |
| 18.9.2007 08:40 | Samgönguvika í Reykjavík | |
|  Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, velti því fyrir sér í dag, er hann vígði fyrstu lífetanóldæluna á Íslandi, hvort ekki yrði brátt að hætta að tala um „bensínstöðvar,“ og finna eitthvað annað orð í staðinn, eftir því sem fleiri orkugjafar en bensín og díselolía fengjust á bíla. Lesa meira... |
|
14.9.2007 12:11 | CELL hópurinn í vettvangsferð | |
|  Nemendahópurinn frá Bandaríkjunum fór í fyrstu vettvangsferðina í dag. Lagt var af stað snemma morguns og brunað á Þingvelli þar sem Einar Á.E. Sæmundssen tók á móti okkur og fræddi um sögu staðarins. Veðrið lék við hópinn og létu þrír félagar sig ekki muna um að fara í sjóbað í Þingvallavatni! Eftir hádegi tók annað eins skemmtilegt við. Lesa meira... |
| 7.9.2007 15:01 | 7Formleg skólasetning | |
|  Föstudaginn 7. september var formleg skólasetning umhverfisfræðináms sem er að hefjast á Sólheimum. Athöfnin fór fram í Sesseljuhúsi umhverfissetri og góð mæting þrátt fyrir hvassviðri. Það var Guðmunur Ármann Pétursson, framkvæmdastjóri Sólheima sem hóf dagskrána, bauð gesti velkomna og fjallaði um Sólheima í alþjóðlegu samhengi. Hann óskaði nemendum alls hins besta á meðan dvöl þeirra stæði. Lesa meira... |
|
5.9.2007 16:18 | Umhverfisnámið hefst formlega | Skólasetning í Sesseljuhúsi |
|  Föstudaginn 7. september n.k. kl. 14 í Sesseljuhúsi umhverfissetri mun nám í umhverfisfræðum á Sólheimum hefjast formlega. Framkvæmdastjóri Sólheima og forstöðumaður Sesseljuhúss munu flytja stutta tölu og síðan mun Umhverfisráðherra ávarpa gesti. Allir íbúar Sólheima er hjartanlega velkomnir að taka þátt í þessum tímamótum. |
| 2.9.2007 16:12 | Tímamót á Sólheimum | |
|  Framundan eru spennandi tímar í Sesseljuhúsi og á Sólheimum því nú er að hefjast umhverfisnám á háskólastigi í samstarfi við bandarísku samtökin CELL. Fyrsti hópurinn kom snemma í morgun og tók Ísland á móti hópnum með hressandi norðanátt. Var haft á orði í hópnum að norðanáttin væri breyting til batnaðar frá 35 gráðum í Boston! Lesa meira... |
|
9.8.2007 13:40 | Eyðilegging kóralrifa hröð | |
|  Kóralrif heimsins hverfa nú mun hraðar en áður var talið, um tvisvar sinnum hraðar en regnskógarnir. Þetta sýnir ný rannsókn frá Háskólanum í North Carolina. Rif á verndarsvæðum verða líka eyðileggingunni að bráð og því fá komandi kynslóðir líklege ekki tækifæri til að svamla í tærum sjó og skoða kóralrif. Frá því um 1960 hafa um 1550 ferkílómetrar eyðilagst á ári í Kyrrahafinu en þar er að finna um 75% af kóralrifum heims. Því stefnir í að um 60 prósent af kóralrifum heims verði horfin árið 2030. Lesa meira... |
| 9.8.2007 09:53 | Sjálfboðaliðar sýna brúðuleikhús | |
|  Boðið var til brúðuleikhúss í íþróttaleikhúsi Sólheima í gær þar sem hugrakkur drengur og vond norn voru í aðalhlutverkum. Það voru erlendir sjálfboðaliðar frá samtökunum SEEDs, sem dvalið hafa á Sólheimum undanfarna daga sem buðu til skemmtunarinnar. En hvernig kemur þessi frétt umhverfismálum við? Jú, allar brúður voru gerðar úr heimilissorpi! Lesa meira... |
|
7.8.2007 11:44 | Mosfellsbær bætist í hópinn | |
|  Nú hefur Mosfellsbær bæst í hóp þeirra sveitarfélaga sem ætla að bjóða námsmönnum frítt í strætó. Áður hafði slík ákvörðun verið tekin í Reykjavíkurborg og Garðabær. Því hafa nú þrjú af sjö sveitarfélögum sem standa að Strætó bs ákveðið að taka þátt í verkefninu "Frítt í strætó". Þetta kemur fram á mbl.is í dag. Þá er bara að vona að hin fjögur sveitarfélögin sem standa að Strætó bs. slái líka til og verði með en það eru Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Seltjarnarneskaupstaður og Sveitarfélagið Álftanes. Þetta er mikilvægt skref í baráttunni við útblástur gróðurhúsalofttegunda og vonandi að námsmenn flykkist í strætó. Lesa meira... |
| 16.7.2007 00:10 | Sýning um endurnýjanlega orkugjafa | |
|  Nýverið var úthlutað úr Orkusjóði Orkustofnunar og fékk Sesseljuhús umhverfissetur úthlutað 400.000 kr. styrk vegna uppsetningar á sýningunni Hrein orka - betri heimur sem er fræðslusýning um endurnýjanlega orkugjafa. Sýningin var opnuð þann 2. júní s.l. og er opin frá 12-18 alla daga vikunnar. Aðgangur er ókeypis. Lesa meira... |
|
20.6.2007 16:11 | Stórt verkefni næsta haust | |
|  Næsta haust mun hefjast nám í umhverfisfræðum á háskólastigi á Sólheimum í samstarfi við bandarísku samtökin CELL. Umsjón með náminu er í höndum Sesseljuhúss. Það voru forsprakkar samtakanna sem höfðu samband við Sólheima og föluðust eftir samstarfi. CELL stendur fyrir "Center for Ecological Learning and Living" og bjóða upp á svokölluð "Study Abroad Program’ en þá gefst bandarískum stúdentum tækifæri að fara út í heim að læra og upplifa og er það metið til háskólaeininga sem nýtast í áframhaldandi háskólanámi eftir að heim er komið. Lesa meira... |
| 20.6.2007 14:55 | Ný þýsk rannsókn á blekbruðli | |
|  Í nýlegri þýskri rannsókn kemur fram að blekprentarar frá öllum helstu framleiðendunum nýta eingöngu um helming af blekinu áður en eigandinn er beðinn um að skipta um blekhylki. Rannsóknin var gerð að beiðni Epson og náði til allra stóru framleiðandanna eins og HP, Canon, Brother, Lesmark, Epson og Kodak. Lesa meira... |
|
20.6.2007 11:54 | Koldíoxíð og hlýnun Jarðar dregin í efa | |
|  Í gærkvöldi var sýnd á RÚV heimildarmyndin "The Great Global Warming swindle" þar sem tilgátan um að hlýnun Jarðar sé vegna aukins styrks koldíoxíðs í andrúmslofti er dregin í efa. Þar koma fram margir vísindamenn sem tala um galla tilgátunnar og hvernig sólin sé í raun aðalvaldurinn - ekki mannskepnan. Talað er um hve málefnið er orðið pólitískt og hvernig alið er á ótta til að fá aukið fé til rannsókna á loftslagi. Þessi mynd hefur fengið mikla gagnrýni frá þeim sem komu fram í henni sem og frá öðrum, eins og kemur fram í nýjasta tölublaði hins virta tímarits The Ecologist (júní 2007). Lesa meira... |
| 20.6.2007 10:38 | Uppsetning og skráning orkunotkunar og -framleiðslu | |
|  Á þaki Sesseljuhúss eru 18 ljósrafalar (photovoltaic cells), hver 140 vött sem gerir þessa ljósrafalasamstæðu þá stærstu á Íslandi. Nýverið var sett upp skýringartafla í húsinu sem sýnir orkuframleiðslu og orkunotkun hússins. Á töflunni kemur fram notkun á heitu og köldu vatni í húsinu og raforkunotkun hússins sem í dag kemur annars vegar frá Hitaveitu Suðurnesja og frá ljósrafölum á þaki hússins. Það var Hörður Benediktsson hjá Landsnet sem hannaði allan hugbúnað í töflunni. Lesa meira... |
|
12.6.2007 15:55 | Sólin skein á gestina | |
|  Nemendur á vegum samtakanna SIT Study Abroad komu í heimsókn til Sólheima í gær til að kynnast sjálfbæru samfélagi á Íslandi. Þau fengu almenna leiðsögn um svæðið í gær og kynntust þannig sögu staðarins sem drýpur af hverju strái. Í dag var síðan fluttur fyrirlesturinn ''Sólheimar and Sustainable development'' í Sesseljuhúsi og hópurinn leiddur um Sesseljuhús og sýninguna ''Hrein orka - betri heimur'' sem sýnd er í sýningarsal hússins. Að lokum var farið í heimsókn í garðyrkjustöðina Sunnu og fræðst um lífræna ræktun og hvernig jarðhitinn er nýttur til að hita upp gróðurhús hér á landi. Lesa meira... |
| 7.6.2007 10:46 | Fræðslupakki um sjálfbæra þróun og Sólheima | |
|  Sesseljuhús býður hópum upp á fræðslupakka sem kallast ''Sjálfbær þróun og Sólheimar''. Þar er fjallað almennt um sjálfbæra þróun, sjálfbærar byggingar og hvernig starfið á Sólheimum hefur tekið mið af umhverfismálum allt frá stofnun árið 1930. Lesa meira... |
|
4.6.2007 10:57 | Opnun sýningar um endurnýjanlega orkugjafa í Sesseljuhúsi | |
|  Laugardaginn 2. júní opnaði sýningin Hrein orka - betri heimur í Sesseljuhúsi umhverfissetri. Auk almennrar umfjöllunar er varpað ljósi á nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa hérlendis og fyrirtækjum boðið að kynna sýna starfsemi. Markmið sýningarinnar er fyrst og fremst að fræða almenning um endurnýjanlegar orkulindir, hver uppruni þeirra er og hvernig þær eru nýttar hér heima, sem og erlendis. Lesa meira... |
| 23.5.2007 10:39 | Nýr umhverfisráðherra | Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra |
|  Þórunn Sveinbjarnardóttir er stjórnmálafræðingur og starfaði á sínum tíma með Kvennalistanum, Reykjavíkurlistanum og nú með Samfylkingunni. Þórunn sat í umhverfisnefnd 1999-2003 og 2004-2005. Umhverfisráðuneytið er bakhjarl Sesseljuhúss og óskum við Þórunni velfarnaðar í starfi. |
|
20.5.2007 15:21 | Síðasti fræðslufundur Sesseljuhúss og Landverndar | |
|  Næsta miðvikudag kl. 17:30 verður fjallað um orkumöguleika framtíðar á fræðslufundi Sesseljuhúss og Landverndar. Þetta er síðasti fræðslufundurinn í þessari röð funda sem hófst í mars. Að vanda verða flutt tvö erindi: Sigurður Ingi Friðleifsson frá Orkusetri fjallar um vistvænt eldsneyti og möguleika þeirra í framtíðinni og Albert Albertsson frá Hitaveitu Suðurnesja fjallar um framtíðarmöguleika í jarðvarmavinnslu. Lesa meira... |
| 18.5.2007 08:53 | Úttekt á ljósaperum í Noregi | |
|  Norsk samtök sem könnuðu gæði og innihald ljósapera vara nú við ódýrum sparperum. Í sumum sparperanna var magn kvikasilfurs næstum því tvöfalt það sem reglugerðir þar í landi leyfa og endingartíminn styttri en hjá glóperu. Lesa meira... |
|
10.5.2007 23:36 | Úthlutun úr Pokasjóði | |
|  Í dag var úthlutað úr Pokasjóði og hlaut Sesseljuhús 400.000 kr. styrk til uppsetningar á sumarsýningu 2007 sem mun fjalla um endurnýjanlega orkugjafa og notkun þeirra í íslensku og alþjóðlegu samhengi. Þar mun íslenskum fyrirtækjum á sviði endurnýjanlegra orkugjafa vera gefinn kostur á að kynna sína starfsemi. Sýningin opnar 2. júní og er hluti af Menningarveislu Sólheima sem stendur í allt sumar. Lesa meira... |
| 9.5.2007 23:22 | Fimmti fræðslufundur Sesseljuhúss og Landverndar | |
| Á fræðslufundinum kl. 17:30 í dag var spurt: Er lífræn ræktun það eina rétta? Gunnar Á. Gunnarsson og Áslaug Helgadóttir fluttu mjög fróðleg erindi og drógu upp mjög ólík viðhorf til ræktunar. Þau voru sammála um markmið ræktunarinnar en ósammála um leiðirnar. Lesa meira... |
|
2.5.2007 11:41 | Fimmti fræðslufundur Sesseljuhúss og Landverndar | |
|  Miðvikudaginn 9. maí kl. 17:30, á fræðslufundi Sesseljuhúss og Landverndar, verður reynt að svara spurningunni hér að ofan. Að vanda verða flutt tvö erindi: Gunnar Á. Gunnarsson frá Vottunarstofunni Tún flytur erindið Í hverju felst lífræn ræktun? Markaðsstaða og sóknarfæri og Áslaug Helgadóttir flytur erindið Eru lífræn ræktuð matvæli það eina rétta? Lesa meira... |
| 1.5.2007 13:53 | Nýr vefur í þágu náttúrunnar | |
|  Á degi umhverfisins, þann 25. apríl s.l., fór áhugaverður vefur í loftið: www.natturan.is. Þetta er óháður regnhlífarvefur og stefnt er að því að koma á framfæri þar öllu því sem fréttnæmt getur talist á svið náttúru- og umhverfismála á Íslandi. Náttúran tekur ekki afstöðu til pólitískra mála en er yfirlýstur málsvari umhverfisins. Hver sem er getur sent inn frétt og tilkynnt um viðburð. Þarna er líka hægt að kaupa umhverfisvænar vörur á markaðstorgi og gefið var út spil með 48 hús- og umhverfisráðum. Lesa meira... |
|
26.4.2007 22:19 | Fjórði fræðslufundur Sesseljuhúss og Landverndar | |
|  Á fræðslufundi Sesseljuhúss og Landverndar var stóriðja í brennidepli og spurt: Hvaða umhverfiskröfur eru gerðar til stóriðju á Íslandi? Það voru þeir Bergur Sigurðsson framkvæmdastjóri Landverndar og Þór Tómasson frá Umhverfisstofnun sem héldu erindi og fræddu gesti um umhverfisáhrif álvera og hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá starfsleyfi fyrir álver. Lesa meira... |
| 20.4.2007 15:41 | Fjórði fræðslufundur Sesseljuhúss og Landverndar | |
|  Fjórði fræðslufundur Sesseljuhúss umhverfisseturs og Landverndar verður miðvikudaginn 25. apríl kl. 17:30 í Sesseljuhúsi en þá er einmitt dagur umhverfisins. Þar verður fjallað um hvaða umhverfiskröfur eru gerðar til stóriðju hér á Íslandi. Gífurleg uppbygging í áliðnaði á sér nú stað hér á landi og eru skiptar skoðanir meðal þjóðarinnar. Mikið hefur verið deilt um fórnarkostnað vegna orkuöflunar sen minna farið fyrir umræðu um umhverfisáhrif álvera og þær umhverfiskröfur sem íslensk lög setja þeim. Hver eru umhverfisáhrif álvera og hvaða kröfur þarf að uppfylla til að fá starfsleyfi fyrir álver? Lesa meira... |
|
13.4.2007 09:19 | Fræðslufundur Sesseljuhúss og Landverndar | |
|  Spurt var hvort landið fyki burtu á þriðja fræðslufundi Sesseljuhúss og Landverndar síðasta miðvikudag. Fyrirlesararnir Björn B. Jónsson og Ólafur Arnalds fluttu mjög áhugaverð og fróðleg erindi og voru sammála um að landið væri svo sannarlega að fjúka burtu. Nú væri þörf á verulegri vitundarvakningu um þetta háalvarlega mál hjá stjórnvöldum og beita markvissri beitarstýringu á hálendinu sem mótvægisaðgerð. Lesa meira... |
| 4.4.2007 22:33 | Þriðji fræðslufundur Sesseljuhúss og Landverndar | |
|  Þriðji fræðslufundur Sesseljuhúss umhverfisseturs og Landverndar verður miðvikudaginn 11. apríl kl. 17:30 í Sesseljuhúsi. Þar verður fjallað um baráttu okkar Íslendinga við jarðvegseyðingu en hún er eitt helsta umhverfisvandamál hér á landi. Langt er síðan Ísland var skógi vaxið milli fjalls og fjöru en hver er staðan í dag? Erum við að snúa vörn í sókn eða er þetta vonlaus barátta? Lesa meira... |
|
29.3.2007 14:13 | Fræðslufundur um umhverfismál | |
|  Ekkert eitt algilt svar er til við spurningunni: Borgar sig að flokka sorp? Þetta var niðurstaða fræðslufundar Sesseljuhúss og Landverndar í gær en þá fluttu Guðmundur Tryggvi Ólafsson og Bryndís Þórisdóttir fróðleg erindi. Í lok fundarins spunnust fjörlegar umræður og kom fram hjá gestum að komið væri að þolmörkum heimila þegar kæmi að ruslpósti. Spurt var meðal annars: Hver á að bera kostnað af flokkun og förgun fríblaða og auglýsingapósts sem flæðir inn á heimilin án þess að um það sé beðið. Lesa meira... |
| 22.3.2007 09:51 | Fræðslufundur 28. mars kl. 17:30 | |
|  Annar fræðslufundur í fundaröð Sesseljuhúss umhverfissetur og Landverndar verður næsta miðvikudag, 28. mars, kl. 17:30. Spurning dagsins er 'Borgar sig að flokka sorp?' og þar verða flutt tvö erindi. Guðmundur Tryggvi Ólafsson framkvæmdastjóri Sorpstöðvar Suðurlands mun fjalla um hvort hagkvæmt sé að flokka og endurvinna sorp og Bryndís Þórisdóttir hjá Vistvernd í verki mun flytja erindi sem kallast Grasrótin virkjuð: Flokkun og endurvinnsla á heimilum. Eins og fyrr verður opnað fyrir umræður í lok fundar og opið er á kaffihúsinu Grænu könnunni. Lesa meira... |
|
21.3.2007 22:16 | Ertu á leið til Lundúna? | |
|  Þó hægt gangi að fá mannkynið til að horfast í augu við að loftslagsbreytingar séu staðreynd og berjast þurfi gegn auknum útblæstri gróðurhúsalofttegunda þá fréttist sífellt oftar af frábæru frumkvæði í rétta átt. Margt smátt gerir eitt stórt og fyrr en varir fer boltinn að rúlla. Eitt slíkt dæmi er leigubílafyrirtækið GreenTomatoCars í London. Það sem gerir þetta fyrirtæki sérstakt er að allir bílar fyrirtækisins eru Toyota Prius og umhverfismálin sett í forgang. Lesa meira... |
| 15.3.2007 23:17 | Gróðurhúsaáhrifin rædd | |
|  Gróðurhúsaáhrifin voru rædd á fræðslufundi Sesseljuhúss og Landverndar í gær þar sem spurt var: Gróðurhúsaáhrifin á Íslandi: Bongóblíða eða helkuldi? Þar héldu Ingibjörg Björnsdóttir og Páll Bergþórsson mjög fróðleg erindi og mynduðust fjörlegar umræður í salnum í lokin. Kom fram að enginn vafi væri á að hitastig færi hækkandi á jörðinni og yfirborð sjávar að hækka. Til að svara spurningu dagsins þá benti Ingibjörg á að þær vangaveltur að hægja muni á Golfstraumnum væri einungis kenning eins vísindamanns. Páll hafði enga trú á þessari kenningu og telur að hlýna muni á Íslandi eins og annars staðar á jörðinni. Lesa meira... |
|
15.3.2007 10:02 | Valdið er hjá neytendum! | |
|  Eitt meginmarkmiðið með www.sesseljuhus.is er að vera upplýsingaveita um sjálfbærar byggingar og umhverfisvæn byggingarefni. Heimasíðan hefur vakið verðskuldaða athygli og fékk hún ríflega 1000 heimsóknir í síðustu viku. Í Morgunblaðinu í dag, á neytendasíðu, bls. 21 er grein eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur sem nefnist "Hvernig á að byggja umhverfisvænt hús". Þar er Sesseljuhús tekið sem dæmi enda er húsið ein umhverfisvænasta samtímabygging á Íslandi. Lesa meira... |
| 12.3.2007 13:15 | Sorpátak unga fólksins | |
|  Í janúar og febrúar var mikið af snjó hér á Sólheimum og vakti það mikla gleði hjá krökkunum. Undanfarið hafa hins vegar vorvindar blásið og allur snjór löngu horfinn. En þá kemur ýmislegt í ljós sem ekki gleður augað - ruslið. Þetta vakti athygli nokkurra krakka á Sólheimum. Þeim fannst þetta ekki gott mál og náðu sér því í stóran poka og gengu um þorpið og söfnuðu í hann rusli. Ruslið endaði svo í ruslagámi þar sem það á að vera! Þetta er fyrirmyndarframtak unga fólksins og gott mál ef komandi kynslóð er svo vel meðvituð um umhverfi sitt. Umhverfishetjurnar heita Ýmir, Birta og Katrín Þöll. Lesa meira... |
|
10.3.2007 01:42 | Fræðslufundur og bíó í Sesseljuhúsi umhverfissetri | |
|  Undanfarin misseri hefur mikið verið rætt um gróðurhúsaáhrif af mannavöldum og afleiðingar þeirra. Talið er að loftslag muni hlýna og í huga margra Íslendinga hljómar það alls ekkert illa! Nú benda ýmsar rannsóknir hins vegar til þess að gróðurhúsaáhrifin muni hægja á Golfstraumnum og leiða til kaldara loftslags á Íslandi. Hvað er til í þessum staðhæfingum? Mun hlýna á jörðinni en kólna á Íslandi? Þessum spurningum verður leitast við að svara á fræðslufundi Sesseljuhúss og Landverndar næsta miðvikudag kl. 17:30 en fundurinn ber yfirskriftina Gróðurhúsáhrifin á Íslandi: Bongóblíða eða helkuldi? Eftir fundinn verður gestum boðið að horfa á kvikmyndina "Óþægilegur sannleikur" þar sem Al Gore fjallar um gróðurhúsaáhrifin í hnattrænu samhengi, orsök þeirra og afleiðingar. Lesa meira... |
| 9.3.2007 01:06 | Hin hliðin á málinu | |
| 
George Bush, forseti Bandaríkjanna og Lula da Silva, Brasilíuforseti hafa ákveðið að vinna saman að þróun á vistvænu eldneyti. Er hér vafalaust um að ræða eldsneyti úr sykurreyr og soyabaunum því Brasilía er á meðal þeirra fremstu á því sviði. Stjórnvöld víða um heim hvetja nú til framleiðslu á slíku eldsneyti, þ.e. eldsneyti sem unnið er úr uppskeru í landbúnaði. En ýmislegt bendir til þess að þetta sé alls ekki svo vel ígrunduð stefna og geti í raun haft skelfilegri afleiðingar en sjálft jarðefnaeldsneytið. Lesa meira... |
|
7.3.2007 22:22 | Skref í rétta átt | |
|  Í dag bárust ánægjulegar fréttir frá okkar ágæta forsætisráðuneyti því ríkisstjórnin hefur samþykkt lagafrumvarp, sem ætlað er að hvetja til aukinnar notkunar á vistvænum ökutækjum. Í lagafrumvarpinu er m.a. gert ráð fyrir að vörugjöld af metanbílum verði felld niður tímabundið (til ársloka 2008). Þá samþykkti ríkisstjórnin að mælast til þess við ríkisstofnanir að þær kaupi vistvæna bíla þegar þær endurnýja bílakost sinn. Þetta eru gleðifréttir því þessar aðgerðir leiða til minni losunar á gróðurhúsalofttegundum og stuðla að nýtingu innlendrar orku, þ.e. metans sem unnið er úr hauggasi. Lesa meira... |
| 1.3.2007 15:39 | Ný tækni í útfararþjónustu | |
|  Umhverfismálin eru alls staðar og eru hluti af tilveru okkar frá vöggu til grafar. Í sýslu einni í Englandi hafa yfirvöld nú ákveðið að grípa til aðgerða til að minnka álag á grafreiti. Nýja aðferðin felst í því að frysta líkin í fljótandi köfnunarefni og hrista þau síðan svo þau verði að dufti. Með þessari nýju aðferð sparast bæði peningar og orka miðað við hefðbundna líkbrennslu og telst aðferðin mjög umhverfisvæn. Lesa meira... |
|
27.2.2007 08:42 | Ölduorka beisluð í Skotlandi | |
|  Gríðarleg orka er falin í sjávarföllum og er hún að mestu óbeisluð. Skotar stefna að því afla um 20% af orkuþörf sinni með endurnýjanlegum orkugjöfum árið 2010 og 40% árið 2020. Þessu ætla þeir að ná með því að beisla orkuna í haföldu og sjávarföllum og stefnt er að því að reisa stærsta sjávarorkuver í heimi á næsta ári við strendur Orkneyja. Skotar stefna að því að verða leiðandi í nýtingu sjávarorku, rétt eins og Danir með vindorkuna. Lesa meira... |
| 26.2.2007 15:01 | Opinn fundur í Norræna húsinu | Kynningarátak um erfðabreyttar lífverur |
|  Næstkomandi fimmtudag, þann 1. mars, verður haldinn opinber fyrirlestur í Norræna húsinu sem kallast: Áhætta erfðatækninnar - þekktir og óþekktir óvissuþættir. Það er Terje Traavik, prófessor í genavistfræði við háskólann í Tromsø sem mun tala en Níels S. Olgeirsson formaður MATVÍS mun setja fundinn og fundarstjóri er Katrín Fjeldsted, læknir og varaþingmaður. Eftirfarandi spurningum mun verða varpað fram:Hvaða áhætta fylgir því að erfðabreyta lífverum, fóðri og matvælum?Hver eru umhverfis- og heilsufarsáhrif erfðatækninnar?Fundarstaður: Norræna húsið í ReykjavíkFimmtudaginn 1. mars 2007 kl. 16.30.Frekari upplýsingar: www.erfdabreytt.net |
|
21.2.2007 11:00 | Hinar ýmsu leiðir umhverfishugsjónarinnar | |
|  Það eru ýmsar sniðugar leiðir í umhverfisvernd. Á síðasta ári var um tveimur tonnum af tískuiðnaðarúrgangi Ítalíu beint frá sorpurðunarstöðum inn í nýja hönnun en það er hönnuðurinn Orsola de Castro sem hannar flíkur eingöngu úr afgöngum og gölluðum vörum frá nokkrum af stærstu tískuverksmiðjum Ítalíu. Tískumerki Orsolu heitir From Somewhere og nýtur stöðugt meiri vinsælda. Hún lítur á afgangana sem algjöra gullnámu. Lesa meira... |
| 14.2.2007 09:36 | Ánægjuleg aukning í sölu lífrænt ræktaðra afurða | |
|  Lífrænt ræktaðar afurðir njóta mikilla vinsælda í Danmörku og nú er svo komið að danskir bændur eru hvattir til að snúa sé í auknum mæli að lífrænni ræktun til að mæta eftirspurn. Umfjöllun um lífrænt ræktaðar afurðir verða í brennidepli í fræðslufundaröð Sesseljuhúss og Landverndar sem hefst í mars. Þar verður spurt: Eru lífrænt ræktuð matvæli það eina rétta? Fjallað verður um hvaða kröfur eru gerðar til lífrænnar ræktunar og málin skoðuð frá ýmsum sjónarhornum. Lesa meira... |
|
13.2.2007 11:44 | | Umfjöllun um Sesseljuhús í Bændablaðinu |
|  Í dag kom Bændablaðið út, 3 tölublað 2007. Að vanda er fjallað um margt áhugavert í blaðinu. Vakin er athygli á grein um Sesseljuhús umhverfissetur á blaðsíðu 22. Hægt er að skoða blaðið á eftirfarandi slóð: Bændablaðið |
| 9.2.2007 09:43 | Ráðstefna í tilefni 10 ára afmælis gassöfnunar í Álfsnesi | |
|  Á áhugaverðri ráðstefnu í gær, 8. febrúar, var spurt: Hvernig ökum við í átt að vistvænni framtíð? -verður metan lykilorðið? Metan er mjög virk gróðurhúsalofttegund, um 20 sinnum skæðari en koldíoxíð. Með því að brenna metan sem eldsneyti verður til koldíoxíð og er þessi bruni því mjög ákjósanlegur, bæði til orkuöflunar og í baráttunni við loftslagsbreytingar. Að auki má nefna að með því að nýta metanið sem eldsneyti þá er verið að nýta innlent vistvænt eldsneyti. Þannig sparast gjaldeyrir sem nýta má í annað. Margt fróðlegt bar á góma á ráðstefnunni eins og sú staðreynd að einungis um 1% af hauggasinu á staðnum er nýttur og um 40-50 bílar eru knúnir af metani á götum borgarinnar í dag. Lesa meira... |
|
5.2.2007 17:39 | Áhrif loftslagsbreytinga af mannavöldum | |
|  Morgunblaðið greinir í dag frá skýrslu frá alþjóðlegu ráðstefnunni í Reykjavík á síðasta ári sem fjallaði um samspil loftslagsbreytinga, hafstrauma og lífríkis hafsins á Norður-Atlantshafi. Þar kemur fram að líklegt er talið að hægja muni á Golfstraumnum af völdum hlýnunar jarðar en þó ekki talið að hann stöðvist. Þetta er áhugavert efni og snertir okkur Íslendinga beint þar sem spurningin er hve byggilegt landið okkar verður í framtíðinni. Þessi spurning mun einmitt verða spurð í mars nk. þegar Sesseljuhús, í samstarfi við Landvernd, mun hefja fræðslufundaröð um umhverfismál. Lesa meira... |
| 5.2.2007 14:57 | Fróðleikur á heimasíðu Umhverfisstofnunar | |
|  Í lok janúar birtist á heimasíðu Umhverfisstofnunar ný undirsíða sem kallast Umhverfisvísar. Þessir vísar eru upplýsingaveita um ýmis efni er snúa að mengunarmálum, náttúruvernd, matvælaeftirliti, gæðum andrúmslofts, vatns, sjávar og lands. Þeir veita upplýsingar um stöðu mála og hvert stefnir, hvort markmið stjórnvalda í tilteknum málaflokkum á sviði umhverfis- og hollustumála eru að nást eða ekki. Lesa meira... |
|
29.1.2007 21:38 | Heimsókn í Sesseljuhús | |
|  Það er ýmis konar fróðleikur til staðar í Sesseljuhúsi og á Sólheimum og er öllum velkomið að nálgast hann. Í dag kom í heimsókn ung kona frá Austurríki að nafni Patricia von Maravic. Hún er skiptinemi við Jarð- og landfræðiskor Háskóla Íslands og er að hefja undirbúning við skrif á lokaritgerð. Lesa meira... |
| 25.1.2007 20:56 | Viðhald á viðargólfi Sesseljuhúss | |
|  Nú er nýlokið við endurbætur á viðargólfinu í Sesseljuhúsi. Var vandað til verka og strangar umhverfiskröfur gerðar til efna sem notuð voru eins og ætíð þegar Sesseljuhús á í hlut. Áður en hafist var handa var haft samband við nokkra verktaka og grennslast fyrir um efnin sem þeir notuðu og umhverfisáhrif þeirra athuguð hjá innflytjanda. Lesa meira... |
|
19.1.2007 09:46 | www.sesseljuhus.is | |
|  Í dag var ný heimasíða Sesseljuhúss formlega tekin í notkun. Þessi síða er hugsuð sem upplýsingaveita um sjálfbær hús og almennt um umhverfismál. Fjallað er um hvað kröfur eru gerðar til sjálfbærra húsa og hvernig Sesseljuhús uppfyllir þessar kröfur. Ýmsar nýjungar hafa verið innleiddar á síðunni. Lesa meira... |
| 15.1.2007 21:35 | | | Bókakostur Sesseljuhúss bættur |  Þann 13. janúar var haldinn vinnufundur um sjálfbærar byggingar í Sesseljuhúsi á vegum Náttúrunnar (grasagudda.is). Í lok fundarins afhenti Birgir Þórðarson umhverfisskipulagsfræðingur bókasafni Sesseljuhúss veglega bókagjöf. Lesa meira... |
|
15.1.2007 21:17 | Umbætur í sorpmálum á Sólheimum | |
|  Undanfarna mánuði hefur verið unnið að umbótum í sorpmálum á Sólheimum, bæði í söfnun á lífrænu sorpi og flokkun og endurvinnslu. Miðvikudaginn 10. janúar var haldinn kynningarfundur í Sesseljuhúsi fyrir íbúa Sólheima þar sem nýjungarnar voru kynntar Lesa meira... |
| 5.12.2006 11:58 | Samstarf við Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar | |
|  Sýningin "Að byggja og búa í sátt við umhverfið" sem sett var upp síðasta sumar í Sesseljuhúsi er komin á flakk. Þann 4. janúar var hún sett upp í anddyri Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar og er þar opin gestum og gangandi. Lesa meira... |
|
3.12.2006 11:44 | Samstarf við Grunnskólann Ljósaborg | |
|  Laugardaginn 2. desember s.l. var opnuð jólasýning í Sesseljuhúsi sem kallast Jólasveinninn minn og er sýningin hluti af menningardagskrá á Aðventudögum Sólheima. Þar eru til sýnis myndskreytingar á ljóði Jóhannesar úr Kötlum um jólasveinana og eru listamennirnir börn í 1.-4. bekk í Grunnskólanum Ljósaborg. Lesa meira... |
|
|
| |
|
|
|
| |
Sesseljuhús umhverfissetur, Sólheimum, 801 Selfoss Sími: 480 4470 Netfang: sesseljuhus@solheimar.is
|
|